Fara í efni

Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja

334. fundur
10. september 2026 kl. 12:00 - 13:27
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson formaður
Guðríður Jónsdóttir aðalmaður
Hildur Rún Róbertsdóttir aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson aðalmaður
Þóra Guðný Arnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jón Pétursson starfsmaður
Silja Rós Guðjónsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
FIFA Arena – beiðni um þátttöku Vestmannaeyjabæjar í umsókn ÍBV
Málsnúmer 202609064
Erindið tekið inn á fundinn með afbrigðum.
Fyrir liggur erindi ÍBV íþróttafélags þar sem óskað er eftir stuðningi Vestmannaeyjabæjar við umsókn félagsins um FIFA Arena við Hásteinsvöll og Týsheimili.
Gunnar Páll Hálfdánsson formaður ÍBV héraðssambands sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi í þessu erindi.

Í erindinu er meðal annars óskað eftir því að Vestmannaeyjabær staðfesti stuðning við verkefnið, styðji fyrirhugaða staðsetningu, taki þátt í nauðsynlegum undirbúningi og staðfesti vilja til samstarfs við ÍBV um framgang verkefnisins.

Erindi og fylgigögn bárust eftir að fundarboð ráðsins hafði verið gefið út og er erindið því tekið fyrir með afbrigðum.

Fjölskyldu- og tómstundaráð bendir á að með verkefninu fylgja fjárhagslegar skuldbindingar fyrir Vestmannaeyjabæ, meðal annars vegna jarðvinnu og undirbúnings svæðis. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum þarf sveitarfélagið að tryggja útgröft og undirbúning, burðarlag, steypta kantbita, frárennsli og fullfrágengið yfirborð fyrir uppsetningu vallarkerfisins. Nákvæm kostnaðaráætlun fylgdi ekki erindi ÍBV en samkvæmt frumáætlun er kostnaður við slíkar framkvæmdir áætlaður um 15–24 m.kr. með VSK, eftir því hvaða útfærsla á undirlagi verður fyrir valinu.

Fjölskyldu- og tómstundaráð telur sér ekki fært að verða við erindi ÍBV þar sem ráðið hefur ekki heimild til að skuldbinda Vestmannaeyjabæ til fjárútláta vegna verkefnisins. Beiðnir sem fela í sér fjárhagslegar skuldbindingar af þessu tagi þurfa að berast með nægum fyrirvara og fara til umfjöllunar hjá bæjarráði.

Fjölskyldu- og tómstundaráð hafnar því erindi ÍBV eins og það liggur fyrir.

2.
Samningur við Endurvinnsluna hf.
Málsnúmer 201503154
Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs leggur til að samningi við Endurvinnsluna hf. verði sagt upp. Breytingin er liður í endurskipulagningu á starfsemi Heimaeyjar sem sinnir starfsemi dagþjónustu og endurhæfingu fyrir fatlað fólk.

Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkir tillögu sviðsstjóra um að efla starfsemi Heimaeyjar vinnu- og hæfingarstöðvar sem virkni- og hæfingarstöðvar, með aukinni áherslu á virkni og hæfingu í samræmi við starfsemi sambærilegra hæfingarstöðva hjá öðrum sveitarfélögum.

Samhliða þessum áherslubreytingum samþykkti ráðið að segja upp samningi við Endurvinnsluna frá og með 1. febrúar nk. Sú ákvörðun er liður í því að efla starfsemi Heimaeyjar og skapa aukið svigrúm til að mæta þörfum þeirra einstaklinga sem þurfa á virkni og hæfingu að halda.

Ekki er um að ræða skerðingu á þjónustu Heimaeyjar heldur fyrst og fremst breytingu á áherslum og fyrirkomulagi þjónustunnar, með það að markmiði að mæta betur ólíkum þörfum þjónustuþega.

Jafnframt eru fyrirhugaðar endurbætur á húsnæði Heimaeyjar vinnu- og hæfingarstöðvar til að bæta aðstöðu og laga húsnæðið betur að starfseminni. Áður en ráðist verður í þær framkvæmdir verður sérstaklega hugað að því hvernig nýta megi það rými sem Endurvinnslan hefur til umráða í dag, með hliðsjón af framtíðarþörfum Heimaeyjar og fjölgun þeirra einstaklinga sem þurfa á virkni og hæfingu að halda.

Markmiðið með breytingunum er þannig að styrkja Heimaey sem virkni- og hæfingarstöð og tryggja að starfsemi, aðstaða og húsnæði geti sem best mætt þörfum þjónustuþega til framtíðar.

3.
Félagslegar leiguíbúðir Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 200703210
Matsblað vegna forgangsröðunar húsnæðisumsókna eldri borgara lagt fyrir ráðið til samþykktar.
Ráðið samþykkir umrætt matsblað.
4.
Jafnréttisáætlun Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 200809002
Jafnréttisáætlun Vestmannaeyjabæjar kynnt og undirbúningur hafinn að nýrri jafnréttisáætlun skv. lögum.
Ráðið þakkar kynninguna og felur sviðsstjóra að hefja undirbúning við gerð nýrrar jafnréttisáætlunar í samræmi við lög.
5.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Málsnúmer 202609039
Fyrsti fundur samráðshópsins frá 28.08.2026 til kynningar.
Ráðið þakkar kynninguna og fagnar því að starfshópur um málefni fatlaðs fólks hafi hafið störf.
6.
Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Málsnúmer 200704148
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. viðauka IV við bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjar nr. 991/2020.