Fara í efni

Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja

333. fundur
8. september 2026 kl. 14:00 - 14:30
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson formaður
Guðríður Jónsdóttir aðalmaður
Hildur Rún Róbertsdóttir aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson aðalmaður
Þóra Guðný Arnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Dagskrá
1.
Heimsókn fjölskyldu- og tómstundaráðs í Bjargið
Málsnúmer 202609074
Fjölskyldu- og tómstundaráð heimsótti Bjargið dagdvöl þriðjudaginn 8. september kl. 14:00. Ragnheiður Lind Geirsdóttir, deildarstjóri dagdvalar aldraðra, tók á móti ráðinu.
Í heimsókninni gafst ráðinu tækifæri til að spjalla við þjónustuþega og starfsfólk. Átti ráðið gott og uppbyggilegt samtal við viðstadda um starfsemi Bjargsins og þá þjónustu sem þar er veitt.
Ragnheiður fór jafnframt yfir starfsemi dagdvalarinnar og kynnti þau fjölbreyttu verkefni sem unnið er að á Bjarginu frá degi til dags.
Fjölskyldu- og tómstundaráð þakkar Ragnheiði, starfsfólki og þjónustuþegum Bjargsins kærlega fyrir góðar móttökur og ánægjulega heimsókn.