Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja
332. fundur
20. ágúst 2026
kl.
12:00
-
12:50
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson
formaður
Guðríður Jónsdóttir
aðalmaður
Hildur Rún Róbertsdóttir
aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson
aðalmaður
Þóra Guðný Arnarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jón Pétursson
starfsmaður
Silja Rós Guðjónsdóttir
starfsmaður
Dagskrá
1.
Umsögn vegna frumvarps til laga um breytingar á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (útivistartími)
Fjölskyldu- og tómstundaráð fagnar þeim breytingum sem lagðar eru til á ákvæðum barnaverndarlaga um útivistartíma barna og styður frumvarpið.
Ráðið telur mikilvægt að reglur um útivistartíma barna taki mið af breyttum samfélagsaðstæðum, aldri og þroska barna og þeim fjölbreyttu tækifærum sem börnum standa nú til boða til félagslegra samskipta, íþrótta- og tómstundastarfs. Reglurnar hafa gegnt mikilvægu hlutverki í forvarnarstarfi og stuðningi við foreldra en mikilvægt er að þær endurspegli einnig þann veruleika sem börn og fjölskyldur búa við í dag.
Sérstaklega fagnar ráðið því að lagt sé til að útivistartími barna á aldrinum 10–12 ára verði lengdur um eina klukkustund yfir vetrartímann. Sú breyting getur skapað börnum á miðstigi aukið svigrúm til félagslegra samskipta, þátttöku í íþrótta- og frístundastarfi og til að verja tíma með jafnöldrum sínum utan skólatíma. Jafnframt er mikilvægt að börn fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu og heilbrigðra félagslegra samskipta, enda getur slíkt stutt við vellíðan þeirra og dregið úr einangrun og óhóflegri skjánotkun.
Ráðið telur einnig jákvætt að lagt sé til að sumartímabil útivistarreglnanna verði samræmt betur skólaárinu og taki gildi frá 1. júní í stað 1. maí. Sú breyting skapar skýrari tengingu við skólastarf og árstíðabundið skipulag fjölskyldna og barna.
Jafnframt telur ráðið mikilvægt að horft sé til réttinda og sjónarmiða barna við mótun reglna sem hafa bein áhrif á daglegt líf þeirra. Í samráðsgögnum kemur fram að börn hafi kallað eftir meiri sveigjanleika og rýmri útivist eftir því sem þau eldast og þroskast. Ráðið telur mikilvægt að slík sjónarmið fái vægi samhliða verndar- og forvarnarsjónarmiðum.
Ráðið leggur áherslu á að breytingar á lögbundnum útivistartíma breyti ekki ábyrgð foreldra á uppeldi og velferð barna. Foreldrar og forráðamenn þurfa áfram að meta aðstæður hvers barns, aldur þess, þroska og þarfir og geta eftir sem áður sett börnum sínum reglur um styttri útivistartíma en lög kveða á um.
Fjölskyldu- og tómstundaráð telur því að frumvarpið sé skref í rétta átt. Með því er leitast við að ná jafnvægi milli þess að tryggja börnum vernd og öryggi annars vegar og hins vegar að veita þeim aukið sjálfstæði, tækifæri til félagslegrar þátttöku og möguleika til að nýta sér íþrótta-, frístunda- og menningarstarf.

Fjölskyldu- og tómstundaráð styður frumvarpið og hvetur til þess að breytingarnar nái fram að ganga.
2.
Heimsóknir Fjölskyldu- og tómstundaráðs í stofnanir sem heyra undir ráðið.
Formaður Fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja leggur fram tillögu að áætlun um dagsetningar heimsókna ráðsins í stofnanir er heyra undir ráðið veturinn 2026 – 2027. Tillögurnar eru lagðar fram með fyrirvara um breytingar sem geta orðið á tímasetningu með skömmum fyrirvara ef aðstæður kalla á.
Heimsókn í Bjargið, þriðjudagurinn 8. sept kl. 14:00.
Heimsókn í Heimaey, vikuna 26. -30. okt
Heimsókn í Kjarnan þjónustuíbúðir fatlaðs fólks, vikuna 23. -27. nóv
Heimsókn í Íþróttamiðstöðina, vikuna 18. -22. jan
Heimsókn í Féló, vikuna 15. - 19. feb
Heimsókn í Kviku, vikuna 15. -19. mars

Ráðið lýsir ánægju með fyrirhugaðar heimsóknir í þær stofnanir sem heyra undir Fjölskyldu- og tómstundaráð. Ráðið hlakkar til að kynna sér starfsemina, verkefnin og það öfluga starf sem unnið er innan stofnananna.
3.
Fundartímar Fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja 2026-2027
Formaður Fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja leggur fram tillögu að áætlun um dagsetningar ráðsfunda og fasta fundartíma. Tillögurnar eru lagðar fram með fyrirvara um breytingar sem geta orðið á fundardagskrá með skömmum fyrirvara ef aðstæður kalla á það, hvort sem um er að ræða tilfærslu funda eða boðun aukafunda.
10.9.2026 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
08.10.2026 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
05.11.2026 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
03.12.2026 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
07.1.2027 2 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
04.2.2027 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
04.3.2027 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
05.4.2027 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
13.5.2027 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
03.6.2027 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.
05.7.2027 kl. 12:00 fundur Fjöl- og tóm.

Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkir framlagða
fundaráætlun.
4.
Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. viðauka IV við bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjar nr. 991/2020.