Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja
331. fundur
14. júlí 2026
kl.
13:00
-
14:03
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson
formaður
Guðríður Jónsdóttir
aðalmaður
Hildur Rún Róbertsdóttir
aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson
aðalmaður
Þóra Guðný Arnarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jón Pétursson
starfsmaður
Dagskrá
1.
Lengd viðvera eftir skóla
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Þjónustuþegum í lengdri viðveru fatlaðra barna 10 – 16/18 ára fjölgar um helming í haust og þörf á auknu fjármagni til að mæta þeim þjónustukröfum.
Ráðið samþykkir þörfina fyrir auknu
fjármagni til reksturs lengdrar viðveru fyrir fötluð börn enda um lögbundna
þjónusta að ræða. Sviðsstjóra er falið að vísa erindinu til bæjarráðs með ósk
um aukna fjárheimild.
2.
Staða æskulýðs-, tómstunda- og íþróttafulltrúa
Sviðsstjóri kynnti hugmyndir að breyttu hlutverki æskulýðs- og tómstundarfulltrúa. Lagt er til að starfið breytist í tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa með breyttri starfslýsingu. Markmið starfs er að bera faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega ábyrgð á deild tómstunda-, íþrótta- og forvarnarmála. Starfið felur í sér stefnumótun, þróun, samræmingu og daglega stjórnun þjónustu sveitarfélagsins á sviði tómstunda, íþrótta og forvarna með áherslu á öfluga þjónustu fyrir íbúa á öllum aldri.
Ráðið samþykkir
framlagða tillögu að breyttu hlutverki og starfslýsingu tómstunda-, íþrótta- og
forvarnarfulltrúa. Ráðið tekur jákvætt í breytingarnar og telur þær styðja
við markvissa uppbyggingu og áframhaldandi þróun málaflokksins í þágu íbúa sveitarfélagsins.
3.
Barnaverndarvaktir á Þjóðhátíð 2026
Bakvaktir barnaverndarþjónustu Vestmannaeyjabæjar á Þjóðhátíð 2026 kynntar ráðinu.
Barnaverndarbakvaktir
verða, líkt og síðastliðin ár, starfræktar frá fimmtudagskvöldi til
mánudagskvölds. Starfsmenn Barnaverndarþjónustu Vestmannaeyjabæjar munu sinna
bakvöktunum. Fjölskyldu- og tómstundaráð beinir því til foreldra og
forráðamanna að börn undir 18 ára aldri eru ólögráða og á ábyrgð foreldra.
Þetta gildir einnig um gestkomandi börn, þau þurfa að vera á ábyrgð fullorðinna
einstaklinga.
4.
Erindisbréf til fulltrúa í ráðum skv. bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar 2026
Lögð fram erindisbréf fulltrúa í fjölskyldu- og tómstundaráði. Erindisbréfin eru unnin í samræmi við bæjarmálasamþykkt, sem samþykkt var árið 2020 og viðauka IV með samþykktinni og staðfest í bæjarstjórn 1. júlí 2026.
Erindisbréf kjörinna
fulltrúa í fjölskyldu- og tómstundaráði lagðar fram.
5.
Siðareglur kjörinna fulltrúa Vestmannaeyjabæjar
Kynning á siðareglum kjörinna fulltrúa Vestmannaeyjabæjar sem samþykktar voru í bæjarstjórn þann 1. júlí 2026.
Siðareglur kjörinna
fulltrúa lagðar fram til kynningar fyrir fulltrúa í fjölskyldu- og
tómstundaráði