Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja
Ráðið samþykkir beiðni deildarstjóra dagdvalar með þeirri breytingu að skertur opnunartími verði frá 20. júlí til 10. ágúst 2026. Á því tímabili verði opnunartími dagdvalarinnar frá kl. 09:00 til 13:00.
Fjölskyldu- og tómstundaráð telur að með þessari ráðstöfun verði unnt að mæta þeim mönnunarvanda sem nú er uppi. Jafnframt beinir ráðið því til sviðsstjóra og deildarstjóra dagdvalar að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að ekki þurfi að skerða þjónustu dagdvalarinnar á árinu 2027.
Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyjabæjar mótmælir harðlega þeirri stöðu að stór hluti barna sem lokið hafa 7. bekk fái ekki að taka þátt í vinnuskóla vegna túlkunar á gildandi lögum um vinnu barna.
Ráðið telur óásættanlegt að börn í sama árgangi njóti ekki sömu tækifæra og að réttur þeirra ráðist af fæðingardegi. Slíkt skapar mismunun og gengur gegn markmiðum vinnuskóla um að veita ungmennum fyrstu kynni af atvinnulífi og samfélagsþátttöku.
Af 56 umsækjendum í sumar verða 34 útilokuð frá þátttöku í upphafi Vinnuskólans, sem er með öllu óeðlilegt þegar vilji er til að bjóða örugg og uppbyggileg störf undir handleiðslu. Ráðið samþykkir að um leið og umsækjandi nær 13 ára aldri geti hann hafið störf í vinnuskólanum. Eftir standa 25 einstaklingar sem ráðið harmar að geta ekki boðið vinnu sökum þess að þau ná ekki 13 ára aldri á meðan á vinnuskólanum stendur.
Ráðið skorar á stjórnvöld og Alþingi að bregðast tafarlaust við og breyta lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum þannig að öllum börnum sem lokið hafa 7. bekk verði tryggt jafnt aðgengi að vinnuskóla, óháð fæðingardegi.
Jafnframt fer ráðið þess á leit við bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart stjórnvöldum og Umboðsmanni barna.
Óverjandi er að börn í sama árgangi sitji ekki við sama borð þegar kemur að þátttöku í vinnuskóla sveitarfélagins.
Fjölskyldu- og tómstundaráð vísar því til bæjarráðs að gera breytingar á bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar þannig að ráðinu sé heimilt að veita ÍBV héraðssambandi áheyrnarfulltrúa í nefndinni þegar fjallað er þar um málefni íþrótta. Með þessu nær ráðið betri tengingu og eykur upplýsingaflæðið til nefndarinnar í málefnum íþrótta.
Alls hafa 10 ungir efnilegir íþróttamenn úr ÍBV sótt um styrk hjá Vestmannaeyjabæ vegna landliðsverkefna sem þeir hafa verið valdir til. Flest eru úr ÍBV handbolta. Ýmist er um að ræða ferðastyrkur og/eða sumarlaun til viðkomandi sem starfa hjá Vestmannaeyjabæ, þann tíma sem æfingar og keppnisferð stendur yfir. Framlag vegna ferðastyrkja er 400 þúsund en kostnaður vegna sumarlauna er erfitt að meta þar sem fjarvera frá vinnu vegna æfinga og keppni er mismunandi hjá umsækjendum.