Fara í efni

Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja

329. fundur
10. júní 2026 kl. 15:00 - 17:01
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson formaður
Guðríður Jónsdóttir aðalmaður
Hildur Rún Róbertsdóttir aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson aðalmaður
Þóra Guðný Arnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jón Pétursson starfsmaður
Silja Rós Guðjónsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Kynning frá ÍBV héraðssambandi
Málsnúmer 202606060
Helga Sigrún Þórsdóttir fulltrúi ÍBV héraðssambands mætti á fundinn og kynnti starfsemi sambandsins og hlutverk þess.
Ráðið þakkar kynninguna.
2.
Öldrunarþjónusta Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 201910049
Thelma Rós Tómasdóttir verkefnastjóri öldrunarmála kynnti öldrunarþjónustu Vestmannaeyjabæjar.
Ráðið þakkar kynninguna.
3.
Kynning á hlutverki og verkefnum fjölskyldu- og tómstundaráðs
Málsnúmer 201807003
Jón Pétursson sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti nýjum ráðsmönnum hlutverk fjölskyldu- og tómstundaráðs og efni erindisbréfs fyrir ráðið.
Ráðið þakkar kynninguna
4.
Tillaga að sumarlokun dagdavalar
Málsnúmer 202604194
Deildarstjóri dagdvalar lagði fram tillögu að sérstakri sumaropnun í Bjarginu. Lagt er til að opið yrði frá kl. 9 - 13 alla daga dagana 8. júlí - 10. ágúst 2026.
Ráðið frestar afgreiðslu máls til næsta fundar.
5.
Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 200804058
Vestmannaeyjabær hefur fengið upplýsingar frá Vinnueftirlitinu að ekki sé heimild samkvæmd lögum til að bjóða börnum yngri en 13 ára vinnu í Vinnuskólanum. Setur það störf, hluta barna úr 7. bekk sem þegar hafa fengið loforð um starf, í uppnám.

Fjölskyldu- og tómstundaráð lýsir yfir vonbrigðum með að gildandi laga- og reglugerðarákvæði leiði til þess að ekki sé unnt að bjóða öllum börnum sem lokið hafa 7. bekk þátttöku í Vinnuskóla Vestmannaeyjabæjar á sömu forsendum. Af 56 umsækjendum verða 34 börn ekki orðin 13 ára við upphaf starfstímans og er því samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga ekki heimilt að ráða þau til starfa á því tímabili sem um ræðir.

Ráðið telur að þessi framkvæmd leiði til mismununar milli jafnaldra sem eingöngu byggir á fæðingardegi innan sama árgangs og samræmist illa sjónarmiðum um jafnræði og meðalhóf. Ráðið felur sviðsstjóra að óska eftir samtali við Félags- og húsnæðismálaráðuneytið um málið, kanna hvort heimildir séu til sveigjanlegri útfærslu og koma á framfæri þeirri afstöðu ráðsins að mikilvægt sé að tryggja öllum börnum í sama árgangi sambærileg tækifæri til þátttöku í vinnuskóla sveitarfélagsins.