Fara í efni

Bæjarstjórn Vestmannaeyja

1631. fundur
4. nóvember 2026 kl. 14:00 - 15:43
Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir forseti
Eyþór Harðarson varaforseti
Aníta Jóhannsdóttir aðalmaður
Anton Örn Björnsson aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson aðalmaður
Jón Þór Guðjónsson aðalmaður
Óskar Jósúason aðalmaður
Trausti Hjaltason aðalmaður
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Málsnúmer 202606031
-Fyrri umræða-

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri flutti framsögu um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2027.

Bæjarstjóri fór yfir vinnulag við gerð fjárhagsáætlunar sem var unnin með sama hætti og áður. En ný reglugerð um fyrirkomulag á málaflokkum og breyting á forsendum innri leigu hefur þau áhrif að samanburður milli ára er erfiður. Bæjarstjórn hittist á tveimur fundum við undirbúning áætlunar til fyrri umræðu en þunginn af vinnunni er hjá bæjarráði og starfsfólki sveitarfélagsins.

Fram kom í framsögu bæjarstjóra að staða bæjarsjóðs Vestmannaeyja verði áfram traust, þrátt fyrir að sveitarfélög glími áfram við áskoranir í rekstri og fjármögnun lögbundinna verkefni. Gert er ráð fyrir jákvæðri afkomu í áætluninni, en tekjur eru varlega áætlaðar í þessari áætlun líkt og áður. Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir um 443 m.kr. rekstrarafkomu á A- hluta og um 610 m.kr. rekstrarafkomu samstæðunnar. Áætlunin mun taka einhverjum breytingum milli umræðna, m.a. vegna áætlana um framlög Jöfnunarsjóðs sem liggja ekki fyrir að öllu leyti, endanlegrar yfirferðar á gjaldfærðum verkefnum og óska um fjárframlög og viðbótarstöðugildi sem á eftir að taka afstöðu til.

Bæjarstjórn hefur samþykkt óbreytta útsvarsprósentu milli ára, 14,91% og álagsprósenta fasteignaskatts lækkar á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.

Mikilvægt er að stilla opinberum álögum í hóf til hagsbóta fyrir íbúa og fyrirtæki og í því skyni samþykkti bæjarstjórn í sumar 2,5% þak á gjaldskrárhækkanir í A-hluta.

Í fjárhagsáætluninni er sömuleiðis gripið til aðgerða til að bæta þjónustu sveitarfélagsins.

Við fyrri umræðu er gert ráð fyrir 1.100 m.kr. í fjárfestingar sem fjármagnaðar eru án lántöku. Bæjarstjórn mun fara yfir fjárfestingaráætlun næstu fjögurra ára á milli umræðna og uppfæra áætlun sveitarfélagsins. Bæjarstjóri mun fara yfir framkvæmdir sveitarfélagsins til næstu ára við seinni umræðu og fara yfir áhersluverkefni bæjarstjórnar.

Almannavarnalögnin NSL-4 var lögð út í ágúst en tjón á henni er enn til mats. Vestmannaeyjabær hefur fjármagnað lögnina þar sem ríkið hefur ekki viðurkennt ábyrgð sína. Greiði ríkið ekki kostnaðinn, 3 milljarða króna, líkt og við aðrar almannavarnir á Íslandi, skerðist framkvæmdageta bæjarins vegna lögbundinna verkefna verulega.

Áfram verður aðhalds og hagkvæmni gætt í rekstri sveitarfélagsins, en áhersla lögð á góða þjónustu við íbúa. Vestmannaeyjar verða áfram góður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk.
Við umræðu um málið tóku til máls: ÍrisRóbertsdóttir, Eyþór Harðarson, Jón Þór Guðjónsson, Arndís María Kjartansdóttir, Trausti Hjaltason, Aníta Jóhannsdóttir og Jóhann Ingi Óskarsson

Sameiginleg bókunbæjarstjórnar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnuna samþykkt að leggja sitt af mörkum til að hægt verði að ná tökum á vöxtum og verðbólgu í samfélaginu með því að setja 2,5% þak á gjaldskrárhækkanir í A- hluta og aðhaldskröfu á rekstur sveitarfélagsins. Annað árið í röð telur bæjarstjórn það óásættanlega stöðu að við fjárhagsáætlunargerð sé sveitarfélagið enn að bíða eftir svörum frá ríkisstjórninni varðandi fjármögnun almannavarnarlagnarinnar NSL4. Sú staða hefur mikil áhrif á áætlanagerð næstu ára og dregur úr framkvæmdagetu sveitarfélagsins til næstu ára. Það er hlutverk ríkisins að greiða fyrir almannavarnir og eiga Vestmannaeyingar ekki að þurfa greiða fyrir almannavarnir frekar en önnur sveitarfélög á landinu.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)

Eyþór Harðarson (sign.)

Aníta Jóhannsdóttir (sign.)

Óskar Jósúason (sign.)

Trausti Hjaltason (sign.)

Anton Örn Björnsson (sign.)

Arndís María Kjartansdóttir (sign.)

Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)

Jón Þór Guðjónsson (sign.)

Hildur Sólveig Sigurðardóttir, forsetibæjarstjórnar, bar upp lykiltölur í fjárhagsáætlun 2027

Fjárhagsáætlun Sveitarsjóðs Vestmannaeyja 2027:

Tekjur alls: kr. 7.503.388.000

Gjöld alls fyrir fjármagnsliði: kr. 7.147.433.000

Rekstrarniðurstaða, jákvæð: kr. 443.824.000

Veltufé frá rekstri: kr. 1.091.605.000

Afborganir langtímalána: kr. 0

Handbært fé í árslok: kr. 1.298.852.000


Fjárhagsáætlun B-hluta bæjarsjóðs Vestmannaeyja 2027:

Rekstrarniðurstaða Hafnarsjóðs: kr. 15.670.000

Rekstrarniðurstaða Vatnsveitu, tap: kr. -30.712.000

Rekstrarniðurstaða Fráveitu: kr. 177.934.000

Rekstrarniðurstaða Félagslegra íbúða: kr. 0

Rekstrarniðurstaða Náttúrustofu Suðurlands, tap: kr. -6.053.000

Rekstrarniðurstaða Eygló eignarhaldsfélags ehf.: kr. 0

Rekstrarniðurstaða Herjólfs ohf.: kr. 10.166.000

Veltufé frá rekstri: kr. 392.030.000

Afborganir langtímalána: kr. 10.038.000


Fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyja 2027:

Tekjur alls: kr. 11.177.993.000

Gjöld alls: kr. 10.663.324.000

Rekstrarniðurstaða, jákvæð: kr. 610.830.000

Veltufé frá rekstri: kr. 1.483.635.000

Afborganir langtímalána: kr. 10.038.000

Handbært fé í árslok: kr. 1.614.622.000


Samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa að vísa fjárhagsáætlun Vestmannaeyjavæjar 2027 til síðari umræðu.


2.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2028-2030
Málsnúmer 202610139
-Fyrri umræða-

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri gerði stuttlega grein fyrir þriggja ára fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2028 - 2030.

Við vinnslu þriggja ára fjárhagsáætlunar er stuðst við málaflokkayfirlit fjárhagsáætlunar næsta árs. Hver liður er uppreiknaður með sérstakri prósentuhækkun/lækkun eftir spám hverju sinni. Við það myndast nýr rekstrarreikningur þar sem tekið er tillit til breytinga á skatttekjum (útsvari og fasteignaskatti), framlögum, t.d. úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, öðrum tekjum, launaþróun, breytingum á lífeyrisskuldbindingum, öðrum kostnaði og fjármagnsliðum. Við gerð efnahagsreiknings er jafnframt stuðst við fjárhagsáætlun næsta árs.

Að öðru leyti verður farið yfir þriggja ára fjárhagsáætlun 2028-2030 milli umræðna og hún lögð fyrir bæjarstjórn við seinni umræðu um fjárhagsáætlunina.

Við umræðu um þriggja ára fjárhagsáætlun tók til máls: Íris Róbertsdóttir

Samþykkt samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa að vísa þriggja ára fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2028-2030 til síðari umræðu.

3.
Bæjarstjóri: Yfirferð helstu mála
Málsnúmer 202606190
Bæjarstjóri fór yfir helstu verkefni frá síðasta bæjarstjórnarfundi.

Meðal annars var farið yfir;

Fund með þingmönnun Suðurkjördæmis

Hafnasambandsþing í Reykjanesbæ

Styttingu Hörgeyragarðs og dýpkun innsiglinar

Samgöngur- Landeyjahöfn og Herjólfur 3

Ályktun SASSársþings á Hvolsvelli

Gagnabeiðni vegna Pisa niðurstaða

Eitt ár frá fyrstu slátrun á laxi hjá Laxey
Við umræðu um málið tóku til máls: Íris Róbertsdóttir, Trausti Hjaltason, Arndís María Kjartansdóttir, Eyþór Harðarson, Jón Þór Guðjónsson og Hildur Sólveig Sigurðardóttir

Sameiginleg bókun bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja tekur undir ályktun ársþings SASS um að framganga ríkisstjórnarinnar gagnvart sveitarfélögum á Suðurlandi sé óásættanleg. Ekki verður unað við að um helmingur nýrra skatttekna ríkissjóðs komi af Suðurlandi á sama tíma og ríkisvaldið dregur úr fjárframlögum til mikilvægra innviða og þjónustu á svæðinu.

Í frumvarpi til fjárlaga eru jafnframt boðaðar skerðingar á fjárframlögum til reksturs Herjólfs ohf sem er ekkert annað en skilaboð um skertar samgöngur milli lands og Eyja. Á sama tíma eru íbúar og atvinnulíf í Vestmannaeyjum látnir bera auknar byrðar meðal annars af áhrifum vegna hækkunar veiðigjalda og kílómetragjalds.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)

Eyþór Harðarson (sign.)

Aníta Jóhannsdóttir (sign.)

Óskar Jósúason (sign.)

Trausti Hjaltason (sign.)

Anton Örn Björnsson (sign.)

Arndís María Kjartansdóttir (sign.)

Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)

Jón Þór Guðjónsson (sign.)

Sameiginleg bókun bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja telur afar jákvætt að hafnar séu framkvæmdir vegna styttingar Hörgeyrargarðs. Markmið styttingar Hörgeyrargarðs er að skapa öruggari og greiðari innsiglingu fyrir skip sem sækja höfnina okkar.

Vestmannaeyjahöfn hefur alla tíð verið hjarta samfélagsins sem skapar verðmæti sem byggt hafa upp bæinn okkar, skapað störf og tryggt afkomu Eyjamanna. Þess vegna eigum við að leggja áherslu á að höfnin sé á hverjum tíma eins örugg og hagkvæm og kostur er.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)

Eyþór Harðarson (sign.)

Aníta Jóhannsdóttir (sign.)

Óskar Jósúason (sign.)

Trausti Hjaltason (sign.)

Anton Örn Björnsson (sign.)

Arndís María Kjartansdóttir (sign.)

Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)

Jón Þór Guðjónsson (sign.)


4.
Dagskrá bæjarstjórnarfunda 2026-2027
Málsnúmer 202605184
Tillaga er um að fundur bæjarstjórnar sem er samkvæmt samþykktri fundadagskrá 2. desember nk. verði færður fram til 1. desember.

Tillaga er um að fundur bæjarstjórnar sem er samkvæmt samþykktri fundadagskrá 7. júlí 2027 verði færður fram til 1. júlí 2027.
Samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.

5.
Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 202605181
Í samræmi við B lið 42. gr. bæjarmálasaþykktar Vestmannaeyjabæjar er lagt til að Þórdís Jóna Guðmundsdóttir verði aðalmaður E-lista í fræðsluráði í stað Eyrúnar Haraldsdóttur.
Samþykkt samhljóða með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
6.
Fræðsluráð Vestmannaeyja - 410
Málsnúmer FUN1630
Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga
7.
Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja - 335
Málsnúmer FUN1630
Liðir 1-6 liggja fyrir til upplýsinga.
8.
Fræðsluráð Vestmannaeyja - 411
Málsnúmer FUN1630
Liðir 1-4 liggja fyrir til upplýsinga.
9.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja - 446
Málsnúmer FUN1630
Liður 1, Strandvegur 44 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar.
Um er að ræða samþykki á tillögu um breytt deiliskipulag.

Liður 2, Umsókn um framkvæmdaleyfi - Stytting Hörgaeyrargarðs og flutningur á efni, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 3-10 liggja fyrir til upplýsinga.
Við umræðu um lið 1 tók til máls: Hildur Sólveig Sigurðardóttir

Liður 1 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.

Við umræðu um lið 2 tók til máls: Jóhann Ingi Óskarsson


10.
Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja - 345
Málsnúmer FUN1630
Liðir 1-7 liggja fyrir til upplýsinga.
11.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja - 447
Málsnúmer FUN1630
Liður 1, Deiliskipulag Iðnaðarsvæðis í Eldfellshrauni - norðurhluti, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða samþykki fyrir kynningu á vinnslustigi að deiliskipulagi.

Liðir 2-5 liggja fyrir til upplýsinga.
Liður 1 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.

12.
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3266
Málsnúmer FUN1630
Liður 4, Tilboð í endurskoðun fyrir Vestmannaeyjabæ 2026-2028, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 17, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða viðauka 11 að fjárhæð 6 m.kr. vegna hlutafjáraukningar í Eyjagöngum.

Allir liðir í fundargerðinni lágu fyrir til upplýsinga og umræðu.
Við umræðu um lið 16 tóku til máls: Trausti Hjaltason og Arndís María Kjartansdóttir

Liður 17 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 4 samþykktur með samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.