Bæjarstjórn Vestmannaeyja
1630. fundur
13. október 2026
kl.
14:01
-
15:44
Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
forseti
Eyþór Harðarson
varaforseti
Aníta Jóhannsdóttir
aðalmaður
Anton Örn Björnsson
aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir
aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson
aðalmaður
Jón Þór Guðjónsson
aðalmaður
Óskar Jósúason
aðalmaður
Trausti Hjaltason
aðalmaður
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir
bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir
ritari
Dagskrá
1.
Fjárlög og þingveturinn framundan
Bæjarstjóri fór yfir helstu áhyggjur sem uppi eru vegna fjárlagafrumvarpsins hvað varðar fjármögnun samgangna við Vestmannaeyjar. Þar er meðal annars um að ræða framlög til reksturs Herjólfs, dýpkunar og nauðsynlegra framkvæmda í Landeyjahöfn í framhaldi af skýrslu dönsku straumfræðistofnunarinnar um breytingar á höfninni. Einnig kom fram að í fjárlagafrumvarpinu er mesti niðurskurðurinn í málaflokkunum "Sveitarfélög og byggðarmál".
Þá fór bæjarstjóri yfir komandi þingvetur og lýsti vonbrigðum með að frumvarp um lagareldi væri ekki að finna á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, eftir að ekki tókst að ljúka afgreiðslu þess á síðasta þingi. Fjárlagafrumvarpið var kynnt 7. september og þingmálaskrá vetrarþingsins lögð fram 10. september síðastliðinn.
Þá fór bæjarstjóri yfir komandi þingvetur og lýsti vonbrigðum með að frumvarp um lagareldi væri ekki að finna á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, eftir að ekki tókst að ljúka afgreiðslu þess á síðasta þingi. Fjárlagafrumvarpið var kynnt 7. september og þingmálaskrá vetrarþingsins lögð fram 10. september síðastliðinn.
Við umræðu um málið tóku til máls: Íris Róbertsdóttir,
Eyþór Harðarson, Jóhann Ingi Óskarsson, Jón Þór Guðjónsson, Óskar Jósúason,
Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Trausti Hjaltason
Sameiginleg bókun bæjarstjórnar
Bæjarstjórn hvetur ríkisstjórnina til þeirra verka sem
bæta hag allra landsmanna.
Aukin skattheimta á undirstöðuatvinnugreinar
landsbyggðarinnar, svo sem sjávarútveg og ferðaþjónustu, samhliða skerðingu
framlaga til samgangna í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi er óásættanleg.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja skorar á ríkisstjórn Íslands að mæta framlagi
landsbyggðarinnar til þjóðarbúsins með því að efla grunnþjónustu og innviði,
einkum samgöngur, almannavarnir, menntun og heilbrigðisþjónustu. Mikilvægt er
að skapa hvetjandi
umhverfi til verðmætasköpunar sem getur staðið undir sívaxandi kostnaði öflugs
velferðarsamfélags.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Trausti Hjaltason (sign.)
Anton Örn Björnsson (sign.)
Arndís María Kjartansdóttir (sign.)
Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
2.
Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar
Á síðasta fundi bæjarstjórnar var tekin fyrir og samþykkt beiðni bæjarfulltrúa Sæunnar Magnúsdóttur um leyfi fram að áramótum. Með vísan í A lið 42. gr. bæjarmálasamþykktar er lagt til að Jóhann Ingi Ósakarsson M-lista verði varamaður í bæjarráði í stað Sæunnar Magnúsdóttur til áramóta.
Samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
3.
Bæjarstjóri: Yfirferð helstu mála
Bæjarstjóri fór yfir helstu verkefni frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Meðal annars var farið yfir;
Samgöngumál og stöðu Herjólfs III.
Landsþing sambandsins og Fjármálráðstefnu sveitarfélaga
Ýmsa aðalfundi samtaka, félaga og ársfundi sem bæjarstjori sótti fyrir hönd Vestmannaeyjabæar.
Fjárhagsáætlunarvinnu
Stöðuna á NSL.4 almannavarnalög
Jöfnunarsjóðurinn
Kjördæmavika
Tölum saman þjóðarsamtal
Meðal annars var farið yfir;
Samgöngumál og stöðu Herjólfs III.
Landsþing sambandsins og Fjármálráðstefnu sveitarfélaga
Ýmsa aðalfundi samtaka, félaga og ársfundi sem bæjarstjori sótti fyrir hönd Vestmannaeyjabæar.
Fjárhagsáætlunarvinnu
Stöðuna á NSL.4 almannavarnalög
Jöfnunarsjóðurinn
Kjördæmavika
Tölum saman þjóðarsamtal
Við umræðu um
málið tóku til máls: Aníta Jóhannsdóttir, Jón Þór Guðjónsson og Hildur Sólveig
Sigurðardóttir
Bæjarstjórn
þakkar bæjarstjóra yfirferðina.
Sameiginleg bókun
bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Vestmannaeyja gagnrýnir að þingmenn Suðurkjördæmis hafi ekki komið
til Vestmannaeyja í kjördæmaviku. Það er óásættanlegt að heimsóknir þingmanna
ráðist af því hvort Herjólfur sigli um Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Vestmannaeyjar eru
hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins. Bæjarstjórn hvetur þingmenn til að
skipuleggja kjördæmaviku með sama hætti og Eyjamenn þurfa daglega að haga sínum
ferðum.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Trausti Hjaltason (sign.)
Anton Örn Björnsson (sign.)
Arndís María Kjartansdóttir (sign.)
Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
4.
Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja - 333
Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga.
5.
Fjölskyldu- og tómstundarráð Vestmannaeyja - 334
Liðir 1-6 liggja fyrir til upplýsinga.
6.
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3264
Liður 2, Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027, liggur fyrir til staðfestingar.
Liðir 1 og 3-13 liggja fyrir til upplýsinga.
Liðir 1 og 3-13 liggja fyrir til upplýsinga.
Við umræðu um lið 2 tóku til máls: Trausti Hjaltason
Liður 2 var samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
7.
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 445
Liður 1, Deiliskipulag Íþróttasvæðis við Hástein - breyting líkamsræktarsalur og niðurrif klefa, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á tillögu um auglýsingu að breyttu deiliskipulagi.
Liðir 2-9 liggja fyrir til upplýsinga.
Liðir 2-9 liggja fyrir til upplýsinga.
Við umræðu undir lið 1 tóku til máls: Eyþór Harðarson, Jóhann Ingi Óskarsson,
Íris Róbertsdóttir, Trausti Hjaltason, Jón Þór Guðjónsson, Aníta Jóhannsdóttir,
Anton Örn Björnsson, Arndís María Kjartansdóttir, Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Bókun bæjarfulltrúa M-lista
Fulltrúar Miðflokksins taka undir og ítreka bókun
fulltrúa Miðflokksins undir 1. lið á 445. fundi umhverfis- og skipulagsráðs
Vestmannaeyja þann 21. september 2026.
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)
Bókun bæjarfulltrúa D-lista
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir bókanir fulltrúa flokksins í ráðinu. Áréttað er að hér i þessum lið er einungis verið að taka afstöðu til deiliskipulagsbreytingu vegna uppbyggingar líkamsræktar og niðurrifs á gömlu búningsklefum. Markmiðið er að Íþróttamiðstöðin verði enn meira aðdráttarafl fyrir Eyjamenn í framtíðinni með fjölbreytta afþreyingu og félagsstarf á hinum ýmsu sviðum fyrir fólk á öllum aldri. Þetta er mikið framfaraskref og mun bæta aðstöðu til muna og mikilvægt að haldið verði áfram með framkvæmdina.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Trausti Hjaltason (sign.)
Samþykkt með sjö atkvæðum D- og E- lista en tveir fulltrúar M-lista sátu hjá við afgreiðslu málsins.
8.
Fræðsluráð Vestmannaeyja - 409
Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga.
9.
Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja - 343
Liðir 1-10 liggja fyrir til upplýsinga.
10.
Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja - 344
Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga.
11.
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3265
Liður 2, Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027, liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 7, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026, liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 11, Tilboð í endurskoðun Vestmannaeyjabæjar 2026-2028 liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 12, Notendaráð, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða tillögu um þóknun fyrir fundarsetu í öldungaráði og samráðshópi um fatlað fólk.
Liður 1, 3-6, 8-10 og 13-19 liggja fyrir til upplýsinga.
Liður 7, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026, liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 11, Tilboð í endurskoðun Vestmannaeyjabæjar 2026-2028 liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 12, Notendaráð, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða tillögu um þóknun fyrir fundarsetu í öldungaráði og samráðshópi um fatlað fólk.
Liður 1, 3-6, 8-10 og 13-19 liggja fyrir til upplýsinga.
Liður 2 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Liður 7 samþykktur samhljóða með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Undir lið 11 kom fram svohljóðandi tillaga: Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu aftur til bæjarráðs til frekari yfirferðar.
Tillagan samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Liður 12 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.