Bæjarstjórn Vestmannaeyja
1629. fundur
9. september 2026
kl.
14:00
-
15:20
Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
forseti
Eyþór Harðarson
varaforseti
Aníta Jóhannsdóttir
aðalmaður
Anton Örn Björnsson
aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir
aðalmaður
Jón Þór Guðjónsson F
aðalmaður
Óskar Jósúason
aðalmaður
Trausti Hjaltason
aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson
varamaður
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir
bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir
ritari
Dagskrá
1.
Umræða um samgöngumál 2026
Bæjarstjóri fór yfir fund bæjarráðs með Vegagerðinni varðandi varaskip fyrir Herjólf IV. Vestmannaeyjabær lagði áherslu á mikilvægi þess að Herjólfur III. yrði tiltækur sem varaskip í Vestmannaeyjum á komandi vetri og mikilvægt væri að tryggja öryggi og fyrirsjáanleika í samgöngum milli lands og Eyja. Ekki er tryggt fjármagn til þess að að reka Herjólf III. sem varaskip. Viðræður eru í gangi milli Vegagerðarinnar, Herjólfs ohf. og Vestmannaeyjabæjar um aðkomu Herjólfs ohf. að umsjón og mönnun á Herjólfi III. á komandi vetri. Bæjarstjóri fór yfir það að nauðsynlegt sé að Vegagerðinni verði tryggt það fjármagn sem þarf til að Herjólfur III. geti sinnt hlutverki varaskips næsta vetur.
Nýr dýpkunaaðili Jan De Nul tekur við dýpkuninni 15. september nk. og hefur sá aðili lagt til breytta aðferð við dýpkun, m.a. með því að fara í fyrirbyggjandi dýpkun (bufferdýpkun). Vegagerðin hefur lýst áhuga á því að láta á slíka dýpkun reyna.

Við umræðu um málið tóku til máls: Íris Róbertsdóttir, Eyþór Harðarson og Jón Þór Guðjónsson
Sameiginleg bókun bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
leggur þunga áherslu á að það ástand sem kom upp í samgöngumálum Vestmannaeyja
endurtaki sig ekki þegar Landeyjahöfn lokaðist í nokkrar vikur. Nauðsynlegt er
að Herjólfur III. verði varaskip fyrir Herjólf IV. í vetur á meðan málin
varðandi Landeyjahöfn eru að skýrast. Nauðsynlegt er
að innviðaráðuneytið tryggi Vegagerðinni það fjármagn sem þarf svo hægt verði
að tryggja Herjólf III. sem varaskip og fara í fyrirbyggjandi dýpkunaraðgerðir.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Trausti Hjaltason (sign.)
Anton Örn Björnsson (sign.)
Arndís María Kjartansdóttir (sign.)
Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
2.
Kaup á almannavarnalögn NSL-4 og fjármögnun
Bæjarstjóri fór yfir stöðuna varðandi fjármögnun almannavarnalagnarinnar NSL-4. Ekki er enn komin niðurstaða í viðræður við stjórnvöld um frekari aðkomu ríkisins að fjármögnun almannavarnalagnarinnar NSL-4. Allar upplýsingar um stöðuna liggja fyrir í innviðaráðuneytinu. Um almannavarnalögn er að ræða sem skilar ekki tekjum til sveitarfélagsins frekar en almannavarnir annars staðar á landinu.
Bæjarstjóri greindi einnig frá því að töluverður kostnaður í formi opinberra gjalda og tolla félli til við kaup og innflutning á almannavarnalögninni. Vestmannaeyjabær sendi fjármálaráðuneyti erindi fyrir rúmu ári síðan og óskaði eftir að ráðuneytið skoðaði breytingar á virðisaukaskattslögum svo ekki kæmi til þessa verulega kostnaðar. Beiðninni hefur ekki verið svarað formlega og því óskaði bærinn eftir niðurfellingu á umræddum gjöldum vegna almannavarnalagnar. Sú beiðni hefur verið ítrekuð nokkrum sinnum, en engin formleg svör hafa borist enn sem komið er. Verði gjöldin ekki felld niður má ætla að stór hluti þeirra 800 milljóna króna, sem ríkið hefur samþykkt og greitt vegna almannavarnalagnarinnar, renni aftur til ríkisins í formi opinberra gjalda og tolla.
Rétt fyrir fund bæjarstjórnar barst svarbréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu vegna erindis Vestmannaeyjabæjar um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og niðurfellingu aðflutningsgjalda vegna almannavarnalagnarinnar. Bréfið verður tekið til efnislegrar meðferðar á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarstjóri fór jafnframt yfir stöðu málsins vegna tjóns sem varð á almannavarnalögninni við útlagningu hennar í ágúst sl. Tjónið var tilkynnt vátryggjendum án tafar og málið unnið í samráði við þá frá upphafi. Umfang tjónsins liggur ekki fyrir en beðið er eftir skýrslu SubSea7, sem er útlagningaraðili lagnarinnar, um tjónið. Hafist var handa við að þrýstiprófa almannavarnalögina síðastliðinn þriðjudag og stendur sú prófun enn yfir.

Við umræðu um málið tóku til máls: Íris Róbertsdóttir, Trausti Hjaltason og Eyþór Harðarson
Sameignleg bókun bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Vestmannaeyja ítrekar enn og
aftur að Vestmannaeyingar eiga ekki að greiða fyrir almannavarnir frekar en
önnur sveitarfélög. Mikilvægt er að samtal við stjórnvöld varðandi fjármögnun
almannavarnarlagnarinnar klárist sem fyrst.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Trausti Hjaltason (sign.)
Anton Örn Björnsson (sign.)
Arndís María Kjartansdóttir (sign.)
Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
3.
Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar
Sæunn Magnúsdóttir, M-lista, hefur óskað eftir tímabundnu leyfi til áramóta sem bæjarfulltrúi og nefndarmaður þar sem hún gegnir nú stöðu setts sýslumanns í Vestmannaeyjum.
Með vísan í B lið 42. gr. bæjarmálasamþykktar er lagt til að Jóhann Ingi Óskarsson verði aðalmaður í framkvæmda- og hafnarráði í stað Sæunnar Magnúsdóttur til áramóta og Jón Þór Guðjónsson verði varamaður í hans stað.

Beiðni Sæunnar Magnúsdóttur um tímabundið
leyfi til áramóta samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa. Jóhann
Ingi Óskarsson, 1. varabæjarfulltrúi M-lista, mun taka sæti hennar í
bæjarstjórn á meðan leyfi stendur.
Tillaga um að Jóhann Ingi Óskarsson verði
aðalmaður í framkvæmda- og hafnarráði og Jón Þór Guðjónsson þá varamaður í hans
stað til áramóta samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
4.
Dagskrá bæjarstjórnarfunda 2026-2027
Forseti bar upp tillögu þess efnis að aukabæjarstjórnarfundur verði haldinn 13. október nk. vegna þeirra áskorana og verkefna sem tengjast framlagningu fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar.
Breytingin samþykkt
með níu samhljóða atkvæðum.
5.
Bæjarstjóri: Yfirferð helstu mála
Bæjarstjóri fór yfir:
Tjónið við útlagningu á almannavarnalögninni NSL
Breytt aðal- og deiliskipulag vegna framkvæmda hjá Laxey
Samninga varðandi skólamáltíðir við Einsa Kalda og fyrir eldri borgara við Vöruhúsið
Þjóðhátíðina
Fund með bæjarstjóra Akureyrar um ýmiss sameiginleg hagsmunamál
Fund stjórnar Félags sjávarútvegssveitarfélaga
Fund með vinnuhópi um ferjuáætlun
Fund með forstjóra MMS um stöðu menntamála og hlutverk stofnunarinnar
Fundi stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga
Fund með framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga um virðisaukaskatt
Atvinnu- og þróunarmál
Fréttir af framgangi Eyjaganga og viljayfirlýsingu við innviðaráðuneytið
Ferðaþjónustumál
Afhendingu umhverfisverðlauna

Bæjarstjórn þakkar bæjarstjóra yfirferðina.
6.
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3262
Liðir 1-24 liggja fyrir til upplýsinga.
7.
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3263
Liðir 1-18 liggja fyrir til upplýsinga.
8.
Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja - 342
Liður 2, Umhverfismat vegna stórskipakants og grjótleitar, liggur fyrir til umræðu
Liðir 1 og 3-5 liggja fyrir til upplýsinga.
Liðir 1 og 3-5 liggja fyrir til upplýsinga.
Við umræðu um málið tóku
til máls: Trausti Hjaltason
Sameiginleg bókun bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Vestmannaeyja fagnar því að
fyrstu skref í uppbyggingu á stórskipakanti norðan Eiðis séu að verða
veruleika. Framkvæmdin skiptir sveitarfélagið og framtíðarmöguleika þess miklu
máli.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Trausti Hjaltason (sign.)
Anton Örn Björnsson (sign.)
Arndís María Kjartansdóttir (sign.)
Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
9.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja - 444
Liður 1, Viðlagafjara - Leiðrétting á deiliskipulagi við Eldfellsveg, liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 4, Sprangan - Umhverfi og frágangur svæðis, liggur fyrir til umræðu.
Liðir 2-3 og 5-10 liggja fyrir til upplýsinga.
Liður 4, Sprangan - Umhverfi og frágangur svæðis, liggur fyrir til umræðu.
Liðir 2-3 og 5-10 liggja fyrir til upplýsinga.
Liður 1 staðfestur með níu samhljóða atkvæðum
bæjarfulltrúa.
Við umræðu um lið 4 tóku til máls: Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Jóhann Ingi Óskarsson og Anton Örn Björnsson
10.
Fræðsluráð Vestmannaeyja - 408
Liður 2, Gjaldskrá leikskóla, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á breyttum innheimtureglum og breytingu á gjaldskrá.
Liðir 1 og 3 liggja fyrir til upplýsinga.
Liðir 1 og 3 liggja fyrir til upplýsinga.
Niðurstaða:
Við umræðu um lið 2 tók til máls: Jóhann Ingi Óskarsson og Aníta Jóhannsdóttir
Bókun bæjarfulltrúa M lista
Miðflokkurinn vill leggja áherslu á að fyrirhuguð könnun meðal foreldra verði víðtækari en einungis könnun á fyrirkomulagi vetrarleyfa. Könnunin nái einnig til upplifunar foreldra af gjaldskrá, vistunartíma, greiðslufyrirkomulagi og kostnaði vegna leikskóladvalar. Mikilvægt er að niðurstöðurnar nýtist við áframhaldandi endurskoðun á fyrirkomulagi leikskólamála í Vestmannaeyjum með þarfir fjölskyldna að leiðarljósi.
Jóhann Ingi Óskarsson (sign.)
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
Fundarhlé kl. 15:10-15:17
Bókun bæjarfulltrúa D lista
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja taka sérstaklega fram að allir pólitískar fulltrúar, þar á meðal fulltrúi Miðflokksins, í stýrihópi er varðar breytingar á leikskólagjöldum voru sammála því að víðtækari könnun á meðal foreldra yrði framkvæmd að reynslutíma liðnum sem yrði þá næsta vor.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Trausti Hjaltason (sign.)
Liður 2 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.