Fara í efni

Bæjarráð Vestmannaeyja

3266. fundur
4. nóvember 2026 kl. 08:00 - 10:10
Í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Eyþór Harðarson formaður
Trausti Hjaltason varaformaður
Jón Þór Guðjónsson aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Málsnúmer 202606031
Bæjarstjóri lagði fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun fyrir árið2027 til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi sem verður síðar í dag miðvikudaginn 4. nóvember 2026.
2.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2028-2030
Málsnúmer 202610139
Bæjarstjóri lagði fram drög að þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun fyrir árin 2028-2030 til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi sem verður síðar í dag miðvikudaginn 4. nóvember 2026.
3.
Kaup á almannavarnalögn NSL-4 og fjármögnun
Málsnúmer 202606034
Framhald af 4. máli 3265. fundar bæjarráðs um erindi Vestmannaeyjabæjar til dómsmálaráðuneytisins þar sem óskað var eftir formlegri viðurkenningu ráðuneytisins á því að NSL-4 verði skilgreind sem almannavarnainnviður. Fram kom að dómsmálaráðuneytið hefði sent innviðaráðuneytinu bréf varðandi málið.

Nú hefur Vestmannaeyjabæ borist afrit af umræddu bréfi frá dómsmálaráðuneytinu til innviðaráðuneytisins. Þar kemur fram að almannavarnir séu sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga og að verkaskipting samkvæmt almannavarnalögum ráði ábyrgð og kostnaðarskiptingu milli aðila. Ráðuneytið tekur hins vegar enga afstöðu til þess hvort almannavarnalögnin NSL-4 teljist almannavarnainnviður.

Eftir að svarbréf dómsmálaráðuneytis barst hefur bæjarstjóri ítrekað fundarbeiðni, fyrir hönd bæjarráðs, með innviðaráðuneytinu vegna málsins og óskað eftir skýrum svörum við erindum sveitarfélagsins. Gætt hefur ákveðins misskilnings um málefni NSL-4. Málið hefur þokast hægt áfram þrátt fyrir ítrekuð erindi og telur sveitarfélagið mikilvægt að farið verði yfir stöðu þess og erindum svarað á fundi með hlutaðeigandi aðilum hið fyrsta.
4.
Tilboð í endurskoðun fyrir Vestmannaeyjabæ 2026-2028
Málsnúmer 202608102
Framhald af 11. máli 3265. fundar bæjarráðs.
Bæjarráð tók þá ákvörðun, eftir mat á tilboðum, að velja KPMG til að sinna endurskoðun sveitarfélagsins næstu fjögur árin. Í samræmi við sveitarstjórnarlög fór málið til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Eftir að fundargerð bæjarráðs var birt 8. október bárust ábendingar sem ráðið og stjórnsýslan taldi nauðsynlegt að skoða nánar. Formaður bæjarráðs óskaði því eftir því við bæjarstjórn að málinu yrði vísað aftur til bæjarráðs til frekari skoðunar.
Að lokinni frekari skoðun og með hliðsjón af þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir telur bæjarráð að skilyrði verðkönnunarinnar um starfsstöð á endurskoðunarsviði í Vestmannaeyjum sé ekki uppfyllt af hálfu KPMG.
Bæjarráð samþykkir verðtilboð Deloitte og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
5.
Fundadagskrá bæjarráðs janúar - júní 2027
Málsnúmer 202610140
Drög að fundadagskrá bæjarráðs fyrir janúar til maí 2027 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að dagskrá.
6.
Fundur með þingmönnum Suðurkjördæmis
Málsnúmer 202610138
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri áttu fjarfund með þingönnum Suðurkjördæmis þann 13. október sl. þar sem farið var yfir helstu hagsmunamál Vestmannaeyja. Meðal annars var farið yfir stöðuna á NSL-4 almannavarnalögninni, samgöngur við Eyjar, málefni Landeyjahafnar, raforkuöryggi, áform um sameiningu lögregluembætta, heilbrigðisþjónustu og uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis.
Á fundinum kröfðust fulltrúar Vestmannaeyjabæjar þess að þingmenn Suðurkjördæmis fylgdu hagsmunamálefnum Vestmannaeyinga eftir á Alþingi í nefndarstarfi og gagnvart ríkisstjórn.
Bæjarráð ítrekar nauðsyn þess að þingmenn Suðurkjördæmis fylgi þeim málum eftir sem fjallað var um á fundinum. Auk þess er mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa að eiga stöðugt samráð og samtal við þingmenn Suðurkjördæmis um þau mikilvægu verkefni sem þarf að vinna að hverju sinni. Án stuðnings þingmanna kjördæmisins verður róðurinn þyngri.
7.
Atvinnustefna Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 202403125
Farið var yfir stöðu vinnu við gerð atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjabæ. Haldnir hafa verið fundir með fulltrúum helstu hagsmunaaðila, efnt var til íbúaþings og íbúum gefinn kostur á að svara rafrænni könnun. Markmið vinnunnar var meðal annars að greina styrkleika og veikleika atvinnulífsins í Vestmannaeyjum ásamt þeim tækifærum og ógnum sem horfa þarf til við mótun atvinnustefnunnar. Nú er unnið að úrvinnslu þeirra gagna og sjónarmiða sem fram komu í þessari vinnu. Þegar sú vinna liggur fyrir mun bæjarráð vinna áfram að gerð stefnunnar.
8.
Kauptilboð í Foldahraun 42, 3C
Málsnúmer 202609192
Á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt kauptilboð í fasteignina Foldahraun 42, 3C. Í kjölfarið barst ósk frá tilboðsgjöfum um að falla frá kauptilboðinu vegna breyttra aðstæðna.
Bæjarráð samþykkir í þessu tilviki að verða við beiðni tilboðsgjafa um að falla frá tilboðinu.Húsnæðisnefnd er falið að setja eignina aftur á sölu.
9.
Útboð á uppbyggingu og rekstri heilsuræktar, kæra til KNÚ
Málsnúmer 202603062
Farið yfir úrskurð kærunefndar útboðsmála frá 26. október 2026 í máli nr. 9/2026 vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar á uppbyggingu og rekstri heilsuræktaraðstöðu. Kröfu kærenda um að umdeildir útboðsskilmálar yrðu felldir úr gildi var hafnað þar sem bindandi samningur var þegar kominn á. Kærunefnd útboðsmála tók ekki efnislega afstöðu til lögmætis hinna kærðu skilmála.

Við undirbúning útboðsins var lögð áhersla á að hæfiskröfur og valforsendur tækju mið af umfangi og tímalengd verkefnisins, fjárhagslegum styrk sérleyfishafa og rekstrarlegri og tæknilegri getu hans til að veita trausta þjónustu. Kröfur um fjárhagslegan styrk og 5.000 virka korthafa voru settar með hliðsjón af umfangi, fjárfestingarþörf og áhættu verkefnisins og sem mælikvarðar á fjárhagslega, rekstrarlega og tæknilega getu bjóðenda. Krafan um 5.000 virka korthafa laut að umfangi rekstrar bjóðanda en var ekki bundin við fjölda korthafa í Vestmannaeyjum. Við mótun skilmála var jafnframt horft til heimilda bjóðenda til að reiða sig á getu annarra aðila og standa sameiginlega að tilboði. Við ákvörðun valforsendna var jafnframt horft til þess að þjónustan nýttist íbúum og gestum Vestmannaeyja sem best, meðal annars með aðgangi að heilsuræktarstöðvum annars staðar á landinu.
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar. Uppbygging heilsuræktar við Íþróttamiðstöðina í Vestmannaeyjum er mikilvægt lýðheilsuverkefni. Ánægjulegt er að komin sé niðurstaða í málið.
10.
Rekstrarsamningur um rekstur Surtseyjarstofu í Eldheimum
Málsnúmer 201410106
Lagður er fram viðauki við rekstrarsamning um rekstur Surtseyjarstofu í Eldheimum. Með viðaukanum er gert ráð fyrir framlengingu samningsins til loka júlí 2027 á meðan Náttúruverndarstofnun vinnur að hugmyndum um fyrirhugaðar breytingar á sýningunni.
Bæjarráð samþykkir viðaukann við samninginn samhljóða.
Viðhengi
Viðauki nr1
11.
Samningur við Kaupmannasamtök Vestmannaeyja
Málsnúmer 202609193
Lögð eru fram drög að samstarfssamningi Vestmannaeyjabæjar og Félags kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum um útgáfu jólagjafabréfa til starfsmanna sveitarfélagsins og endurgreiðslu til fyrirtækja í félaginu eftir að þau hafa verið innleyst.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög samhljóða.
12.
Samningur vegna nýsköpunarverkefnis
Málsnúmer 202411079
Samningur milli Þekkingarseturs Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabæjar um aðstöðustyrk vegna starfsmanns sem ráðinn var til að greina sóknar- og nýsköpunarmöguleika fyrirtækja í uppsjávariðnaði rennur úr 30. nóvemer nk. Þekkingarsetrið óskar ekki eftir framlengingu hans, þar sem starfsmaður verkefnisins, Grettir Jóhannsson, hefur nú verið ráðinn framkvæmdastjóra Þekkingarseturs Vestmannaeyja og forsendur samningsins því breyst.
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og vill nota tækifæri og þakka Herði Baldvinssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra Þekkingarseturs Vestmannaeyja, fyrir samstarfið. Jafnframt óskar bæjarráð Gretti Jóhannssyni til hamingju með starfið sem framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja og óskar honum velfarnaðar í starfi.
13.
Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá
Málsnúmer 202610137
Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá var til umsagnar hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og var frestur til að skila inn umsögn til 27. október sl.
Bæjarráð styður umrædda þingsályktun og kom því á framfæri í umsögn til nefndarinnar.
14.
Bréf frá KSÍ varðandi öryggi í knattspyrnuhöllum
Málsnúmer 202610158
Lagt fram almennt erindi frá Inga Rafni Ingibergssyni, f.h. Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ), varðandi öryggi í knattspyrnumannvirkjum.
Bæjarráð vísar erindinutil umhverfis- og framkvæmdasviðs.
15.
Húsnæðisáætlun 2027
Málsnúmer 202610159
Lagt fram erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vegna endurskoðunar húsnæðisáætlunar fyrir árið 2027. HMS hefur opnað fyrir nýja útgáfu í áætlanakerfinu og skal endurskoðuð húsnæðisáætlun sveitarfélagsins hafa verið staðfest af bæjarstjórn eigi síðar en 20. janúar 2027.

Bæjarstjóri fór yfir vinnulag við gerð húsnæðisáætlunar.
Bæjarráð samþykkir að viðhafa sama vinnulag og verið hefur við vinnslu húsnæðisáætlunar. Sviðsstjórar forvinna áætluna og vinna hana svo áfram í samráði við bæjarráð.
16.
Eyjagöng
Málsnúmer 202611020
Borist hefur beiðni frá Eyjagöngum um að hluthafar auki hlut sinn um 20% á sama gengi og áður, 1 kr. á hlut. Er þetta mikilvægur liður í því að ljúka fjármögnun vegna rannsóknarvinnu sumarsins. Kostnaður við þessa hlutafjáraukingu Vestmannaeyjabæjar væri 6 m.kr. samkvæmt þessari beiðni.

Viðaukinn er til afgreiðslu í 17. lið.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka þátt í hlutafjáraukningunni að fjárhæð 6 m.kr. og gera þarf ráð fyrir henni í viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
17.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602032
Viðauki 11 lagður fram til staðfestingar. Um er að ræða fjárfestingarviðauka vegna hlutafjáraukningar í Eyjagöngum að fjárhæð 6 m.kr. sem fjarmagnaður er með handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðaukann.
19.
Trúnaðarmál lögð fyrir bæjarráð 2026
Málsnúmer 202606037
Trúnaðarmál eru færð í sérstaka fundargerð trúnaðarmála.