Fara í efni

Bæjarráð Vestmannaeyja

3265. fundur
6. október 2026 kl. 12:00 - 13:46
Í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Eyþór Harðarson formaður
Trausti Hjaltason varaformaður
Jón Þór Guðjónsson aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Dagskrá
1.
Umræða um samgöngumál 2026
Málsnúmer 202605185
Bæjarstjóri fór yfir nýjustu upplýsingar frá Vegagerðinni um dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn.
Dýpkunarskip Jan De Nuul (JDN) hóf störf að einhverju marki síðastliðinn föstudag. Þá var dýpi í hafnarmynninu um 3,7 metrar. Skipið vann í um sex klukkustundir um kvöldið og beitti jetting-aðferð þar sem sjó er dælt niður í sjávarbotninn til að losa sand og færa hann frá hafnarmynninu.
Aðfaranótt sunnudags gekk önnur lægð yfir svæðið. Þegar mælt var á sunnudag hafði dýpið aukist í 4,1 metra og hófst vinna að nýju klukkan 20:00 um kvöldið. Að morgni mánudags var dýpið í hafnarmynninu komið niður í 5,0 metra og í dag mælist það á bilinu 6-7 metrar.
Á mánudagsmorgni var hætt að jetta og dýpkun hafin með hefðbundnari hætti þar sem straumurinn framan við höfnina reyndist ekki nægilega sterkur til að flytja efnið frá svæðinu.
Nú vinnur skipið á svokölluðum buffer-svæðum með það að markmiði að draga úr því hversu hratt sandur safnast fyrir framan hafnarmynnið.
Framkvæmdirnar ganga því vonum framar. Afköst skipsins eru margfalt meiri en þeirra aðila sem áður hafa sinnt dýpkuninni og ljóst er að staðan væri mun erfiðari ef ekki væri kominn nýr dýpkunaraðili sem er með dýpkunarskip staðsett í Vestmannaeyjum ásamt því að vera með aukinn búnað og aukna afkastagetu. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að hafa yfir að ráða öflugum búnaði og skýrri áætlun um að halda Landeyjahöfn opinni.
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar. Byrjunin lofar góðu hjá dýpkunaraðila og bundnar eru góðar vonir við framhaldið. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að allt sé gert svo hægt sé að sigla í Landeyjahöfn enda eru siglingar þangað gríðarlega mikilvægar fyrir samfélagið.
2.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Málsnúmer 202606031
Bæjarráð ræddi ramma og forsendur fjárhagsáætlunar. Bæjarráð leggur til að útsvarsprósenta verði óbreytt, eða 14,91%, en leyfilegt hámark er 14,97%. Þá leggur bæjarráð til að gert verði ráð fyrir 3,5% verðlagshækkunum en í því felst töluverð aðhaldskrafa með tilliti til þróunar vísitölu neysluverðs. Þegar hefur verið samþykkt að miða gjaldskrárhækkanir við 2,5% fyrir A-hluta.
Bæjarstjóri fór yfir óskir frá sviðsstjórum og forstöðumönnum í tengslum við vinnu fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar sem varða rekstur og fjárfestingar.
Lagt fram bréf frá VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandi Íslands þar sem óskað er eftir afstöðu Vestmannaeyjabæjar til aðgerða sem geta stuðlað að lægri verðbólgu, lægri vöxtum og auknum efnahagslegum stöðugleika.
Jafnframt er lagt fram bréf frá Starfsgreinasambandi Íslands þar sem sveitarfélög eru hvött til þátttöku í þjóðarsátt um verðstöðugleika og óskað eftir afstöðu þeirra til þess hvernig þau geti lagt sitt af mörkum til að stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum.
Einnig er lögð fram ályktun Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem sveitarfélög lýsa yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027, samhliða því að kalla eftir því að ríkisvaldið tryggi fullnægjandi fjármögnun þeirra verkefna sem sveitarfélögum eru falin.
Við undirbúning fjárhagsáætlunar lagði ráðið þegar í júní sl. til að gjaldskrárhækkanir í A-hluta sveitarfélagsins yrðu ekki hærri en 2,5% og var sú tillaga staðfest af bæjarstjórn í júlí. Með þeirri ákvörðun hefur sveitarfélagið þegar markað sér skýra stefnu um hóflegar gjaldskrárhækkanir í þágu verðstöðugleika og er þannig í samræmi við þau sjónarmið sem fram koma í framangreindum erindum og ályktun Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjórum að vinna áfram að forsendum þeim sem ræddar voru á fundinum.

Bæjarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að svara erindunum, enda hefur Vestmannaeyjabær þegar komið til móts við þau sjónarmið sem þar koma fram.


3.
Tjón á neysluvatnslögn NSL3
Málsnúmer 202311142
Dómsmál Vestmannaeyjabæjar gegn Vinnslustöðinni hf., Hugin ehf. og VÍS tryggingum hf. (og HS Veitum hf. til réttargæslu) var þingfest þann 30. september sl. í Landsrétti þar sem lögmaður sveitarfélagsins lagði fram ítarlega greinargerð um málið ásamt málsgögnum.
4.
Kaup á almannavarnalögn NSL-4 og fjármögnun
Málsnúmer 202606034
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 432 milljónir króna vegna greiðslna til Subsea7 og NOV vegna kaupa og flutnings á almannavarnalögninni þar sem ekki er gert ráð fyrir þeim í fjárheimildum 2026 vegna þess að bæjarstjórn telur að almannavarnir séu á hendi ríkisins og það sé ríkisins að greiða fyrir þær.

Vestmannaeyjabær hefur sent dómsmálaráðuneytinu erindi þar sem óskað er eftir formlegri staðfestingu á því að NSL-4 teljist almannavarnalögn og mikilvægur almannavarnainnviður sem ætlað er að tryggja órofinn aðgang Vestmannaeyjasamfélags að neysluvatni. Jafnframt er óskað eftir að ráðuneytið komi þeirri afstöðu á framfæri við önnur hlutaðeigandi ráðuneyti svo unnt verði að ljúka viðræðum um fjármögnun verkefnisins.

Samkvæmt svari frá dómsmálaráðuneytinu við erindi Vestmannaeyjabæjar átti afstaða ráðuneytisins að berast innviðaráðuneytinu 1. október sl. Bæjarstjóri hefur óskað eftir afriti af svarinu sem enn hefur ekki borist.


Viðaukinn er til afgreiðslu í lið 7.
5.
Útlagning almannavarnalagnar NSL-4 og tjón
Málsnúmer 202608103
Vatnshópurinn fundaði með forsvarsmönnum Subsea7, fulltrúa Verkís og lögmanni sveitarfélagsins mánudaginn 5. október þar sem farið var yfir skýrslu Subsea7 varðandi tjónið sem varð á almannavarnalögninni við útlögn hennar.
Fram kemur í skýrslunni viðurkenning Subsea 7 á því að tjónið megi rekja til mistaka við framkvæmd útlagningar og að ferlar um borð hafi ekki tryggt að útlagningin héldist innan öryggismarka. Vestmannaeyjabær var tryggður gagnvart tjóni sem kynni að verða við útlagningu lagnarinnar. Prófun og mati á umfangi tjóns á NSL-4 er ekki lokið en þegar það mat á liggur fyrir fer málið í viðeigandi ferli.

6.
Vatnsleki á lögn við Skiphella
Málsnúmer 202609199
Tekið fyrir mál sem vísað var til bæjarráðs af 344. fundi framkvæmda- og hafnarráðs. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4,5 milljónir til að skipta út lögn fyrir nýja lögn vegna leka frá Hlíðarvegi 2 að dælustöð HS Veitna í Friðarhöfn.

Viðaukinn er til afgreiðslu í lið 7.
7.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602032
Viðauki 9 vegna kaupa og flutnings á almannavarnalögn NSL-4 að fjárhæð kr. 432 milljónir króna lagður fram til staðfestingar. Um er að ræða fjárfestingarviðauka sem fjármagnaður er með handbæru fé.

Viðauki 10 vegna lagningar nýrrar vatnslagnar frá Hlíðarvegi 2 að dælustöð HS Veitna í Friðarhöfn að fjárhæð 4,5 milljónir króna lagður fram til staðfestingar. Svigrúm er innan málaflokksins og er því um tilfærsluviðauka að ræða.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 9.

Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 10.


8.
Viltu hafa áhrif - umsóknir fyrir fyrri úthlutun 2027
Málsnúmer 202609160
Vestmannaeyjabær auglýsti nýverið eftir umsóknum í styrktarsjóð menningar, lista, íþrótta og tómstunda undir heitinu Viltu hafa áhrif? Um er að ræða styrkumsóknir fyrir fyrri hluta árs 2027 en auglýst verður eftir umsóknum í sjóðinn fyrir seinni hluta árs 2027 í mars.
Markmið sjóðsins er að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda.
Alls bárust 14 styrkumsóknir í sjóðinn. Bæjarráð tekur afstöðu til átta umsókna og fjölskyldu- og tómstundaráð til sex umsókna.
Bæjarráð þakkar fjölbreyttar og áhugaverðar umsóknir. Ráðið samþykkir styrki vegna fyrri úthlutunar 2027 sem tilkynntir verða við athöfn í byrjun desember.

9.
Kauptilboð í Foldahraun 42, 3C
Málsnúmer 202609192
Bæjarráð samþykkti á 3257. fundi þann 25. mars sl. að setja félagslega leiguíbúð að Foldahrauni 42, 3C á sölu skv. beiðni frá sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs. Ætlunin er að kaupa minni íbúð í staðinn.

Vestmannaeyjabæ hefur borist kauptilboð í Foldahraun 42, 3C að fjárhæð 40 milljónir króna. Frestur til að svara tilboðinu er til kl. 16:00 þann 6. október.
Bæjarráð samþykkir samhljóða kauptilboðið að fjárhæð 40 milljónir króna.

10.
Umbætur til hagræðingar
Málsnúmer 202511044
Framhald af 14. máli 3262. fundar bæjarráðs þann 22. júlí sl. Aðgerðaáætlanir forstöðumanna og sviðsstjóra í tengslum við hagræðingartillögur lagðar fram.
Bæjarráð þakkar fyrir vinnuna og mun vinna með tillögurnar á milli umræðna.

11.
Tilboð í endurskoðun fyrir Vestmannaeyjabæ 2026-2028
Málsnúmer 202608102
Vestmannaeyjabær auglýsti nýverið eftir verðtilboði í endurskoðun og uppgjör bæjarins til þriggja ára, þ.e. 2026-2028, með möguleika á framlengingu um tvö ár. Samkvæmt innkaupareglum Vestmannaeyjabæjar ber að auglýsa eftir verðtilboðum í þjónustuna þegar áætlaður kostnaður er á bilinu frá 1 milljón til 15 milljóna króna. Auglýst var eftir tilboðum frá þeim aðilum sem eru með starfsstöðvar í Vestmannaeyjum en það eru Deloitte og KPMG. Tilboð bárust frá báðum aðilum og eftir mat á þeim var niðurstaðan að tilboð KPMG fékk hærra heildarmat samkvæmt þeim matsþáttum sem lagðir voru til grundvallar.
Bæjarráð hefur yfirfarið framkomin tilboð og mat á þeim og samþykkir að taka tilboði KPMG.

12.
Notendaráð sveitarfélaga
Málsnúmer 202609056
Lögð fram tillaga um fundarþóknun til fulltrúa sem bæjarstjórn skipaði í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks og öldungaráð. Lagt er til að greitt verði fyrir hvern fund samkvæmt sömu viðmiðum og greitt er fyrir fundi (án gunnþóknunar) í fastanefndum, en áætlað er að fundir verði fjórir á ári.

Drög að erindisbréfum fyrir notendaráð lögð fram.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um fundarþóknun og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að erindisbréfum og leggur til að þau verði lögð fram til kynningar í fjölskyldu- og tómstundaráði áður en þau verða lögð fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

13.
Fjárlög og þingveturinn framundan
Málsnúmer 202609194
Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um fund sem Samband íslenskra sveitarfélaga hélt með framkvæmdastjórum sveitarfélaga þar sem farið var yfir þingveturinn framundan og þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Sérstök áhersla var á þingmál sem snerta sveitarfélögin. Einnig var farið yfir stóru myndina í fjárlögum.
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra yfirferðina. Bæjarráð telur mikilvægt að fylgjast vel með framgangi mála sem snúa að sveitarfélaginu. Málið verður til umræðu á næsta bæjarstjórnarfundi.

14.
Fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu
Málsnúmer 202610006
Bæjarráð ræddi fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu sem kynntar hafa verið af dómsmálaráðuneytinu. Samkvæmt þeim áformum verður lögregluembættum fækkað úr níu í þrjú og embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum sameinað embættum á Suðurlandi og Austurlandi.
Bæjarráð leggst eindregið gegn fyrirhuguðum breytingum sem fela í sér sameiningu lögregluembættisins í Vestmannaeyjum við önnur embætti. Sérstaða Vestmannaeyja sem eyjasamfélags, samgönguaðstæður og almannavarnir kalla á sjálfstætt lögregluembætti með staðbundinni stjórn, þekkingu og ákvarðanatöku.

Bæjarráð krefst þess að fallið verði frá þessum áformum og að sjálfstæði embættisins verði tryggt og felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með dómsmálaráðherra til að koma þessari afstöðu skýrt á framfæri og ræða framtíð embættisins í Vestmannaeyjum.


15.
Frumvarp til breytinga á sveitarstjórnarlögum
Málsnúmer 202609191
Frumvarp til breytinga á sveitarstjórnarlögum var til umsagnar hjá umhverfis- og samgögnunefnd Alþingis og var frestur til að skila inn umsögn til 1. október sl. Heilt yfir telur bæjarráð frumvarpið fela í sér ýmsar jákvæðar breytingar sem miða að því að skýra stjórnsýslu sveitarfélaga og styrkja umgjörð sveitarstjórnarstigsins. Bæjarráð kom þessu á framfæri í umsögn en setti jafnframt fram nokkrar athugasemdir við einstaka greinar frumvarpsins.
16.
Netöryggisstefna
Málsnúmer 202609196
Hallgrímur Njálsson, deildarstjóri tölvudeildar, kynnti drög að netöryggisstefnu fyrir Vestmannaeyjabæ. Með stefnunni leggur sveitarfélagið áherslu á mikilvægi meðferðar á upplýsingum og upplýsingakerfum í allri starfsemi sinni.
Bæjarráð þakkar kynninguna og samþykkir samhljóða netöryggisstefnuna.

17.
Könnun á fýsileika jarðganga milli lands og Eyja
Málsnúmer 202410109
Aðalfundur Eyjaganga var haldinn 30. september sl. og mætti bæjarstjóri og formaður bæjarráðs á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins sem er stærsti hluthafinn. Bæjarráð kynnti sér ársreikning, fundargerð aðalfundar og skýrslu framkvæmdastjóra.
Bæjarráð lýsir ánægju með störf félagsins og framgang verkefnisins. Spennandi tímar eru framundan og áhugavert að sjá hvað næstu skref leiða í ljós.
19.
Trúnaðarmál lögð fyrir bæjarráð 2026
Málsnúmer 202606037
Trúnaðarmál eru færð í sérstaka fundargerð trúnaðarmála.