Fara í efni

Bæjarráð Vestmannaeyja

3264. fundur
16. september 2026 kl. 12:01 - 13:10
Í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Eyþór Harðarson formaður
Trausti Hjaltason varaformaður
Jón Þór Guðjónsson aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Dagskrá
1.
Umræða um samgöngumál 2026
Málsnúmer 202605185
Bæjarráð fór yfir stöðuna varðandi Landeyjahöfn.

Nýr dýpkunarverktaki Jan De Nul hefur hafið störf og er áhöfnin að kynna sér aðstæður á svæðinu. Samkvæmt Vegagerðinni er dýpið í höfninni gott um þessar mundir og ekki er talin þörf á umfangsmikilli dýpkun á næstunni. Stefnt er á viðhaldsdýpkun við innsiglingu og brimvarnargarða þegar aðstæður leyfa.
2.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Málsnúmer 202606031
Bæjarráð ræddi ramma og forsendur fjárhagsáætlunar. Undanfarnar vikur hefur vinna staðið yfir á bæjarskrifstofum Vestmannaeyja við að skoða áhrif breytinga á álagningarprósentu fasteignaskatts á tekjur bæjarsjóðs. Bæjarstjóri fór yfir vinnuna sem unnin var fyrir bæjarráð og þá tillögu sem liggur fyrir.

Árlega er gerð endurálagning í júní á alla flokka (A-B-C) þar sem afsláttur af fasteignagjöldum einstaklinga verður endurreiknaður miðað við skattframtal ársins á undan. Er þetta breytt verklag við að endurskoða álagningu þar sem álagningin er endurreiknuð hjá öllum, ekki eingöngu hjá þeim sem þess óska.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækki á milli ára úr 0,225% og verði 0,220% (A flokki), hlutfallið verði óbreytt á opinberar stofnanir (B flokki), þ.e. 1,320% og að hlutfallið lækki úr 1,315% í 1,300% á annað húsnæði (C flokki), þ.m.t. atvinnuhúsnæði. Með þessu er verið að lækka álögur á íbúa og fyrirtæki í Vestmannaeyjum.

3.
Útlagning almannavarnalagnar NSL-4 og tjón
Málsnúmer 202608103
Þar sem viðræðum við ríkið er ekki enn lokið um fjármögnun þess á almannavarnalögninni sendi Vestmannaeyjabær fjármála- og efnahagsráðherra þann 2. júní 2025 ósk um breytingu á 3. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, í erindinu er vísað til 2. mgr. greinarinnar, í því skyni að heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts af lagningu neysluvatnslögn sveitarfélaga.

Jafnframt hafði Vestmanneyjabær sent ráðuneytinu fyrirspurn þess efnis hvort fjármála- og efnahagsráðherra gæti með stjórnvaldsbréfi til tollyfirvalda fellt niður virðisaukaskatt vegna innflutnings lagnarinnar.

Þann 9. september sl. barst svarbréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu við erindi Vestmannaeyjabæjar. Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið telji ekki forsendur til að leggja til umbeðna lagabreytingu og að ekki sé fyrir hendi lagaheimild til að fella niður virðisaukaskatt vegna innflutnings lagnarinnar með stjórnvaldsbréfi eða tilmæla til tollayfirvalda.

Þegar hefur verið óskað eftir fundi með fjármála- og efnahagsráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu svo unnt verði að ljúka málinu.

Bæjarstjóri greindi frá stöðu þrýstiprófana á almannavarnalögninni NSL-4. Fyrstu niðurstöður eru jákvæðar; þrýstingur hefur haldist á lögninni án merkja um marktækt þrýstifall og rennsli mælst um 3 L/s. Framundan eru umfangsmeiri prófanir, útskolun lagnarinnar og tenging hennar við kerfi HS Veitna í Eyjum, auk rennslisprófana til staðfestingar á afköstum hennar.

Nú er Vestmannaeyjabær búinn að leggja út fyrir kostnaði við nýja almannavarnalögn NSL-4 fyrir utan 800 milljóna króna framlag ríkisins, sem ríkið tekur nú að stórum hluta til baka með álagningu á tollum og sköttum. Eftir stendur að íbúar í Vestmannaeyjum þurfa að greiða fyrir almannavarnir sem hlýtur að teljast einsdæmi. Bæjarráð telur óásættanlegt að samtalinu við ríkið um fjármögnun almannavarnalagnarinnar sé ekki lokið enda framkvæmdin á lokastigi. Mikilvægt er að fundur með hlutaðeigandi ráðuneytum fari fram sem fyrst svo unnt verði að ljúka málinu.

4.
Uppsögn á samningi um varaafl í Vestmannaeyjum
Málsnúmer 202606153
Bæjarráð ræddi stöðu mála vegna brottflutnings varaaflsstöðva Landsnets frá Vestmannaeyjum.

Í lok ágúst tilkynnti Landsnet Vestmannaeyjabæ um að upp væru komar aðstæður annarsstaðar á landinu þar sem þörf væri á varaaflsvélunum. Landsnet sótti vélarnar og flutti þær á brott. Fundur með Landsneti um varaaflið og stöðuna átti að eiga sér stað í september. Vestmannaeyjabær hefur andmælt flutningnum og óskað eftir þeim fundi með Landsneti vegna málsins.

Bæjarráð ítrekar fyrri afstöðu við Landsnet um mikilvægi þess að varaaflstöðvar séu staðsettar í Vestmannaeyjum þrátt fyrir lagningu tveggja nýrra rafstrengja síðastliðið ár. Ekki hefur enn reynt með fullnægjandi hætti á endurbætt raforkukerfi yfir helsta álagstímann. Að mati bæjarráðs er því ekki unnt að réttlæta það að ekkert varaafl verði til staðar í Vestmannaeyjum.

5.
Málefni Náttúrustofu Suðurlands
Málsnúmer 202609059
Farið var yfir stöðu reksturs Náttúrustofu Suðurlands. Fram kom að framlag ríkisins var lægra en gert var ráð fyrir og þ.a.l. skerðist hlutfall bæjarins í samræmi við það. Launakostnaður verður jaframt umfram áætlun, meðal annars vegna rannsóknarverkefna sem byggðar eru á áætluðum framlögum. Fyrirséð er að halli á rekstri Náttúrustofu Suðurlands verði meiri en áætlun gerði ráð fyrir.

Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og ítrekar mikilvægi þess að stofnunin haldi sér innan fjárhagsramma hvers árs.

6.
Tilboð í tryggingar fyrir Vestmannaeyjabæ 2027-2029
Málsnúmer 202609055
Bæjarráð var upplýst um að gildistími samnings við Sjóvá vegna trygginga er senn á enda.
Bæjarráð felur stjórnsýslunni að leita tilboða í tryggingar.
7.
Hópslysaáætlun fyrir Vestmannaeyjar
Málsnúmer 202609057
Atvikaáætlun vegna hópslysa fyrir umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum lögð fram til kynningar. Áætlunin var unninn af lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum, almannavarnanefnd Vestmannaeyja í samstarfi við ríkislögreglustjóra.
8.
Forvarnar- og viðbragðsáætlun vegna ógnandi hegðunar, ofbeldis, áreitni eða hótana í garð starfsfólks af hálfu þjónustuþega
Málsnúmer 202609061
Drög að innri forvarnar- og viðbragðsáætlun vegna ógnandi hegðunar, ofbeldis, áreitni eða hótana í garð starfsfólks af hálfu þjónustuþega lögð fram til kynningar og staðfestingar.

Bæjarráð samþykkir samhljóða drögin að áætluninni.

9.
Reglur Vestmannaeyjabæjar um greiðslutilhögun innkaupa
Málsnúmer 202609060
Drög að innri reglum Vestmannaeyjabæjar um greiðslutilhögun innkaupa lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða drögin að reglunum.
10.
Notendaráð sveitarfélaga
Málsnúmer 202609056
Farið yfir bréf frá frá Sambandi íslenskra sveitarfélag um mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að fylgja málinu eftir.
11.
Samstarfssamningur vegna Hljómeyjar
Málsnúmer 202609054
Drög að samstarfssamningi Vestmannaeyjabæjar og KGBS ehf. vegna tónlistarhátíðarinnar Hljómeyjar lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samninginn samhljóða og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Vestmanneyjabæjar.
12.
Goslokanefnd 2027
Málsnúmer 202609058
Tekin fyrir skipan í Goslokanefnd 2027.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að skipa í Gosloknefnd fyrir árið 2027 Ernu Georgsdóttur, sem verður formaður, Magnús Bragason, Birgi Níelsen, Dóru Björk Gunnarsdóttur, Súsönnu Georgsdóttur og Gígju Óskarsdóttur. Með nefndinni starfa framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar.

13.
Trúnaðarmál lögð fyrir bæjarráð 2026
Málsnúmer 202606037
Trúnaðarmál eru færð í sérstaka fundargerð trúnaðarmála.