Fara í efni

Bæjarráð Vestmannaeyja

3263. fundur
24. ágúst 2026 kl. 12:00 - 14:17
Í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Eyþór Harðarson formaður
Trausti Hjaltason varaformaður
Jón Þór Guðjónsson F aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Samkvæmt 9. mgr. 28. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Vestmannaeyjabæjar nr. 991/2020 fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar stendur.
Dagskrá
1.
Umræða um samgöngumál 2026
Málsnúmer 202605185
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs mætti á fundinn og fór yfir farþegatölur Herjólfs á árinu. Það sem af er ári hafa 236.536 farþegar ferðast með skipinu, sem er 14,3% færri farþegar en á sama tíma og í fyrra. Ólafur Jóhann fór jafnframt yfir rekstur félagsins sem er undir áætlun sem rekja má til þess að siglingar reyndust erfiðar til Landeyjahafnar fram yfir miðjan maí. 

Bæjarráð ræddi það helsta sem fram kom á fundi með Bergþóru Þorkelsdóttur, vegamálastjóra og Hilmari Stefánssyni, forstöðumanni almenningssamgangna sem fram fór þann 18. ágúst sl. Tilgangur fundarins var að ræða erindi Vestmannaeyjabæjar frá 10. ágúst sl. um stöðu Herjólfs III. og fyrirkomulag samgangna næsta vetur.

Vestmannaeyjabær lagði áherslu á mikilvægi þess að Herjólfur III. yrði tiltækur sem varaskip í Vestmannaeyjum á komandi vetri og mikilvægt væri að tryggja öryggi og fyrirsjáanleika í samgöngum milli lands og Eyja. Af hálfu Vegagerðarinnar kom fram að verulegur niðurskurður á fjárveitingum til almenningssamgangna væri boðaður og skortur á fjármagni stæði í vegi fyrir rekstri tveggja varaskipa. Jafnframt kom fram að engin endanleg ákvörðun hefði verið tekin um framtíðarnýtingu Herjólfs III. Niðurstaða fundarins var að hefja formlegt samtal milli Herjólfs ohf., Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar um aðkomu Herjólfs ohf. að umsjón og mönnun á Herjólfi III. á komandi vetri.
Það er óásættanlegt að samgöngur við Vestmannaeyjar séu flokkaðar sem almenningssamgöngur og sæti verulegum niðurskurði á komandi árum, Herjólfur er okkar þjóðvegur. Slík áform samræmast illa þeim skýru skilaboðum sem ríkisstjórnin hefur ítrekað sent um mikilvægi bættra samgangna og uppbyggingar innviða um land allt.

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa sagt að sambærilegt ástand og skapaðist í samgöngum við Vestmannaeyjar á liðnum vetri megi ekki endurtaka sig. Bæjarráð Vestmannaeyja skorar því á ríkisstjórn Íslands og innviðaráðherra að tryggja að samgöngur við Vestmannaeyjar verði ekki skertar.

Jafnframt er þess krafist að tryggt verði nauðsynlegt fjármagn og fyrirkomulag þannig að Herjólfur III. verði til taks í Vestmannaeyjum á komandi vetri sem varaskip og öryggisnet fyrir samfélagið. Reynslan af síðasta vetri hefur sýnt með ótvíræðum hætti hversu mikilvægt það er að tryggja öruggar, áreiðanlegar og fyrirsjáanlegar samgöngur milli lands og Eyja.

Gestur:
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf.


2.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Málsnúmer 202606031
Ræddar voru forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Vestmannaeyjabær hefur verið að skoða áhrif lækkunar á álagningaprósentum á tekjur bæjarsjóðs af fasteignagjöldum. Lögð voru fyrir drög að forsendum til ákvörðunartöku álagningarhlutfalls á fasteignaskatti.

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlunar sveitarfélaga 2026 og 2027-2029 lá fyrir til kynningar.
Bæjarráð mun taka afstöðu til álagningarprósentu fasteignagjalda fyrir árið 2027 á næsta fundi.

3.
Kaup á almannavarnalögn NSL-4 og fjármögnun
Málsnúmer 202606034
Bæjarstjóri fór yfir helstu tölur varðandi kaup, flutning og útlagningu á almannavarnalögn NSL-4. Fram kom að greiddur kostnaður vegna almannavarnalagnar NSL-4 nemur um 1,75 ma.kr. og að óframkomnir reikningar og áætlaður kostnaður til verkloka nemi um 1,36 ma.kr. Þá hefur ríkissjóður lagt verkefninu til samtals 800 m.kr. eins og staðan er í dag en ekki er enn komin niðurstaða í viðræður við innviða-, dómsmála- og fjármálaráðuneytið um frekari aðkomu ríkisins að fjármögnun almannavarnalagnarinnar NSL-4 þrátt fyrir ítrekun þar um eftir síðasta fund ráðsins.

Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður fór yfir ferli varðandi beiðni Vestmannaeyjabæjar til fjármálaráðuneytis um undanþágu frá opinberum gjöldum vegna kaupa og innflutnings á almannavarnalögninni. Beiðnin var send til ráðuneytisins fyrir rúmu ári og hefur verið ítrekuð nokkrum sinnum en engin svör hafa borist. Nú liggur fyrir að Vestmannaeyjabær þarf að greiða tolla vegna innflutnings almannavarnalagnarinnar ef ekki verður veitt umbeðin undanþága sem fyrst.
Bæjarráð ítrekar að kaup á almannavarnavatnslögn eigi alfarið að vera á hendi ríkisins eins og aðrar almannavarnir.

Gestur í gegnum fjarfundarbúnað:
Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður
4.
Útlagning almannavarnalagnar NSL-4 og tjón
Málsnúmer 202608103
Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður fór yfir stöðu máls vegna tjóns sem varð á almannavarnalögninni NSL-4 við útlagningu hennar í ágúst 2026. Fram kom að tjónið hefði verið tilkynnt vátryggjendum án tafar og að aðgerðir Vestmannaeyjabæjar hefðu verið unnar í samráði við þá, með það að markmiði að takmarka tjón og halda tryggingavernd óskertri. Umfang tjónsins liggur ekki endanlega fyrir og mun skýrast eftir prófanir, frekari skoðun lagnarinnar og gagnaöflun, m.a. frá framleiðanda. Næstu skref felast í áframhaldandi gagnaöflun, samskiptum við vátryggjendur og rýni á væntanlega skýrslu Subsea7.

Vatnshópurinn, sem í sitja allir oddvitar framboða, hefur fundað þrisvar sinnum vegna málsins með lögfræðingum og verkefnastjórum.

Innviðaráðuneytið var upplýst um stöðuna, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og formaður almannavarnanefndar Vestmannaeyjabæjar hafa verið upplýst reglulega um stöðu mála.
Bæjarráð þakkar Heiðari fyrir yfirferðina. Vatnshópurinn mun funda um leið og skýrsla Subsea7 og önnur gögn vegna málsins liggja fyrir.

Gestur í gegnum fjarfundarbúnað:
Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður
5.
Sex mánaða uppgjör Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2026
Málsnúmer 202608101
Samstæða A og B Vestmannaeyjabæjar
Lögð voru fyrir bæjarráð drög að sex mánaða rekstraryfirliti Vestmannaeyjabæjar.
Samkvæmt yfirlitinu eru heildartekjur samstæðunnar fyrstu sex mánuði ársins um 9,8% hærri en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir og heildarrekstrarkostnaður um 2,2% hærri en áætlunin.

Rekstrarafkoma fyrstu sex mánuði ársins er töluvert betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

A-hluti
Lögð voru fyrir bæjarráð drög að sex mánaða rekstraryfirliti fyrir sveitarsjóð. Samkvæmt yfirlitinu eru heildartekjur A-hluta fyrstu sex mánuði ársins 11,3% hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir og heildarrekstrarkostnaður um 0,9 % hærri en áætluninni.

Rekstrarafkoma fyrstu sex mánuði ársins er því mun betri en áætlun gerir ráð fyrir.
Bæjarráð þakkar fyrir framlagðar upplýsingar og leggur áherslu á mikilvægi þess að áfram verði fylgst vel með rekstri sveitarfélagsins, enda eru áskoranir í rekstrarumhverfinu áfram umtalsverðar.
6.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602032
Fyrir bæjarráði lá viðauki nr. 8 sem bæjarráð fól fjármálastjóra að vinna í samráði við sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs. Um er að ræða rekstrarviðauka að fjárhæð 4.550.000 og er til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu á lengdri viðveru eftir skóla fyrir fötluð börn. Viðaukinn er fjármagnaður með handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðaukann samhljóða. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

7.
Breyting á bæjarmálasamþykkt 2026
Málsnúmer 202607081
-Seinni umræða-

Síðari umræða um breytingu á 38. grein bæjarmálasamþykktar sem heimilar ÍBV héraðssambandi að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa og einn til vara úr stjórn héraðssambandsins til setu á fundum fjölskyldu- og tómstundaráðs. Mun fulltrúinn hafa málfrelsi en hvorki tillögu- né atkvæðisrétt og honum gert að víkja af fundi áður en önnur mál eru tekin til meðferðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða umrædda breytingu á 38. grein bæjarmálasamþykktar og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að senda breytinguna til staðfestingar hjá innviðaráðuneytinu. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

8.
Framkvæmdir 2026
Málsnúmer 202512089
Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn og fór yfir stöðuna á stærstu framkvæmdum sveitarfélagsins.
Ráðið þakkar yfirferðina.

Gestur:
Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs



9.
Tilboð í endurskoðun fyrir Vestmannaeyjabæ 2026-2028
Málsnúmer 202608102
Bæjarráð var upplýst um áform þess efnis að leita tilboða í endurskoðun fyrir Vestmannaeyjabæ en gildistími samnings við KPMG er senn á enda.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að leita tilboða í endurskoðunina samkvæmt þeim forsendum sem kynntar voru.

10.
Atvinnustefna Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 202403125
Hafdís Huld Björnsdóttir hefur haldið utan um vinnu við gerð atvinnustefnu Vestmannaeyjabæjar. Í kjölfar þess að hún hefur verið ráðin bæjarstjóri Fjallabyggðar liggur fyrir að hún mun ekki halda áfram með verkefnið. Unnið er að því að fá annan aðila til að taka við verkefninu.
Ráðið þakkar upplýsingarnar.
11.
Ægisgata 2
Málsnúmer 202403033
Framhald af 8. máli 3262. fundar bæjarráðs þann 22. júlí sl. Bæjarráð samþykkti 480 milljón króna tilboð í Ægisgötu 2 (2. og 3 hæð) á fundi sínum þann 20. apríl sem síðar var staðfest af bæjarstjórn. Þann 29. júní sl. samþykkti bæjarráð tveggja vikna frest til að ganga frá kaupsamningi til að tilboðsgjafar gætu lokið við fjármögnun. Bæjarráð veitti síðan viðbótarfrest á síðasta fundi til 17. ágúst sl. Tilboðsgjafar hafa nú óskað eftir frekari fresti.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um frekari frest og felur stjórnsýslunni að setja eignina aftur á sölu.

12.
Fundargerðir til kynningar 2026
Málsnúmer 202601165
Fundargerðir samtaka, nefnda og ráða lagðar fram til kynningar.
13.
Trúnaðarmál lögð fyrir bæjarráð 2026
Málsnúmer 202606037
Trúnaðarmál eru færð í sérstaka fundargerð trúnaðarmála.
14.
Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja - 340
Málsnúmer FUN3266
Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga.
15.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja - 442
Málsnúmer FUN3266
Liðir 1-13 liggja fyrir til upplýsinga.
16.
Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja - 332
Málsnúmer FUN3266
Liðir 1-4 liggja fyrir til upplýsinga.
17.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja - 443
Málsnúmer FUN3266
Liður 3, Reglur um smáhýsi, skúra og garðveggi, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 4, Samþykkt um hunda- og kattahald í Vestmannaeyjum, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 5, Gjaldskrá hunda- og kattahalds, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 1-2 og 6-8 liggja fyrir til upplýsinga,
Liður 3 samþykktur samhljóða.

Liður 4 samþykktur samhljóða.

Liður 5 samþykktur samhljóða.

Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu á ofangreindum liðum í sumarleyfi bæjarstjórnar.

-
18.
Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja - 341
Málsnúmer FUN3266
Liðir 1-8 liggja fyrir til upplýsinga.