Fara í efni

Bæjarráð Vestmannaeyja

3262. fundur
22. júlí 2026 kl. 12:00 - 13:19
Í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Eyþór Harðarson formaður
Trausti Hjaltason varaformaður
Arndís María Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Sæunn Magnúsdóttir varamaður
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Samkvæmt 9. mgr. 28. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Vestmannaeyjabæjar nr. 991/2020 fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar stendur.
Dagskrá
1.
Umræða um samgöngumál 2026
Málsnúmer 202605185
Formaður bæjarráðs og bæjarstjóri funduðu með fulltrúum Vegamálastjóra og fulltrúum Vegagerðarinnar í byrjun júlí til að leggja áherslu á að Herjólfur III verði tilbúinn og til taks sem varaskip næsta vetur svo ekki komi upp sambærileg staða og síðasta vetur ef Herjólfur IV verður fyrir rekstrartruflunum eða Landeyjarhöfn sé ekki opin eins og vonir standa til. Vegagerðin gat ekki staðfest að skipið yrði til taks þar sem er ekki áætlað fjármagn til rekstur þess í fjárheimildum Vegagerðarinnar. Nauðsynlegt er að ríkisstjórnin tryggi það fjármagn sem þarf til að Herjólfur III verði tiltækur sem varaskip fyrir Vestmannaeyjar næsta vetur. Reynslan af Baldri síðasta vetur sýndi það að hann hefur enga möguleika á að sinna þjónustu við Vestmannaeyjar þegar Landeyjarhöfn er lokuð.

Viðgerð á rafmótor Herjólfs IV gekk vel. Hann er væntanlegur til Vestmannaeyja í kvöld og hefur átta ferða áætlun á morgun, fimmtudag.
Bæjarráð leggur ríka áherslu á að Vegagerðinni verði tryggt fjármagn til að hægt sé að hafa Herjólf III. tilbúinn sem varaskip til að tryggja nauðsynlegar samgöngur til Vestmannaeyja. Þannig er hægt að bregðast við þegar á þarf að halda og koma í veg fyrir þjónusturof líkt og upp kom s.l. vetur með tilheyrandi skaða. Samgöngur við Vestmannaeyjar eru líka mikilvægar þjóðarbúinu.
Bæjarráð þakkar áhöfn Baldurs fyrir veitta þjónustu undanfarnar vikur.

2.
Tjón á neysluvatnslögn NSL3
Málsnúmer 202311142
Farið yfir dóm Héraðsdóms Suðurlands í máli Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðarans gegn Vinnslustöðinni hef., Hugin ehf. og VÍS en dómur var kveðinn upp þann 3. júlí sl. Dómurinn sýknaði Vinnslustöðina hf. af öllum kröfum og staðfesti að Hugin ehf. og VÍS tryggingum hf. væri heimilt að takmarka ábyrgð sína samkvæmt siglingalögum. Jafnframt var talið að ekki hefði verið sýnt fram á stórfellt gáleysi sem leiddi til brottfalls þeirrar heimildar. Málskostnaður var felldur niður. Frestur til áfrýjunar er fjórar vikur frá uppkvaðningu dómsins.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að áfrýja málinu til Landsréttar enda mikilvægt að fá úr því skorið hvort þak á ábyrgð haldi á öðrum dómstigum. Sömu hagsmunir og ástæður eru enn í gildi og þegar ákvörðun var tekin um að sækja fulla bætur vegna tjónsins. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Viðhengi
Dómur
3.
Kaup á almannavarnalögn NSL-4 og fjármögnun
Málsnúmer 202606034
Ekki er enn komin niðurstaða í viðræður við innviða-, dómsmála- og fjármálaráðuneyti um frekari aðkomu ríkisins að fjármögnun almannavarnarlagnar NSL-4. Mikilvægt er að niðurstaða komist í málið sem fyrst. Allar upplýsingar liggja fyrir í innviðaráðuneytinu um stöðuna. Vestmannaeyjabær á ekki vatnsveituna og rukkar því engin vatnsgjöld. Um almannavarnalögn er að ræða sem ekki skilar tekjum til sveitarfélagsins frekar en almannavarnir annars staðar á landinu.

Ósk um viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 461.400.000 vegna greiðslu til NOV vegna kaupa á almannavarnalögninni þar sem ekki er gert ráð fyrir henni í fjárheimildum fyrir árið 2026 vegna þess að bæjarstjórn telur að almannavarnir séu á hendi ríkisins og það sé ríkisins að greiða fyrir þær.

Viðaukinn er til afgreiðslu í lið 4.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á framfæri ítrekun um svör frá innviða-, dómsmála- og fjármálaráðherra ásamt því að upplýsa forsætisráðherra og formann allsherjar- og menntamálanefndar um skort á svörum við beiðni Vestmannaeyjabæjar.

4.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602032
Viðauki 7 vegna kaupa á almannavarnalögn NSL-4 að fjárhæð kr. 461.400.000 lagður fram til staðfestingar. Um er að ræða fjárfestingarviðauka sem fjármagnaður er með handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 7. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

5.
Umræða um heilbrigðismál
Málsnúmer 202606155
Bæjarráð átti fund með framkvæmdastjórn HSU þann 29. júní sl. Á fundinum var farið yfir stöðu heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum, einkum stöðu mönnunar, álag á starfsemi og þau verkefni sem unnið er að til að tryggja áframhaldandi þjónustu. Fram kom að unnið sé að lausnum vegna mönnunar og að áfram sé lögð áhersla á að tryggja stöðuga og örugga heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum. Bæjarráð mun áfram fylgjast með framvindu málsins og eiga samtal við HSU um stöðu þjónustunnar enda nauðsynlegt að grunnþjónusta sé tryggð á HSU í Vestmannaeyjum.
6.
Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 202605181
Með vísan í B lið 42. gr. bæjarmálasamþykktar er gerð tillaga um að Þór Vilhjálmsson verði varamaður í yfirkjörstjórn í stað Guðna Hjörleifssonar.

Með vísan í C lið 42. gr. bæjarmálasamþykktar er gerð tillaga um að Arndís María Kjartansdóttir verði aðalfulltrúi á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í stað Jóns Þórs Guðjónssonar og Anton Örn Björnsson verði varamaður í stað Sæunnar Magnúsóttur.

Með vísan í C lið 42. gr. bæjarmálasamþykktar er gerð tillaga um að Anton Örn Björnsson varði aðalfulltrúi á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í stað Sæunnar Magnúsdóttur og að Sæunn Magnúsdóttir verði þá varafulltrúi í stað Antons Arnar Björnssonar. Jafnframt er tillaga um að Erlingur Guðbjörnsson og Hildur Rún Róbertsdóttir verði varafulltrúar á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í stað Jóhanns Inga Óskarssonar og Sonju Andrésdóttur.

Með vísan í E lið 42. gr. bæjarmálasamþykktar er gerð tillaga um að Anton Örn Björnsson verði aðalfulltrúi í stjórn Eyglóar ehf. í stað Jóns Þórs Guðjónssonar og Arndís María Kjartansdóttir verði varamaður í stað Sæunnar Magnúsdóttur.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framsettar tillögur. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

7.
Breyting á bæjarmálasamþykkt 2026
Málsnúmer 202607081
Fyrri umræða um breytingu á bæjarmálasamþykkt. Um er að ræða viðbót við 38. grein sem heimilar ÍBV héraðssambandi að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa og einn til vara úr stjórn héraðssambandsins till setu á fundum fjölskyldu og tómstundaráðs. Mun fulltrúinn hafa málfrelsi en hvorki tillögu- né atkvæðisrétt og honum gert að víkja af fundi áður en önnur mál eru tekin til meðferðar.

Bæjarráð samþykkir samhljóða umrædda breytingu á 38. grein bæjarmálasamþykktar og vísar málinu til seinni umræðu. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

8.
Ægisgata 2
Málsnúmer 202403033
Framhald af 6. máli á 3261. fundi bæjarráðs þann 29. júní sl. Bæjarráð samþykkti 480 milljón króna tilboð í Ægisgötu 2 (2. og 3 hæð) á fundi sínum þann 20. apríl sem síðar var staðfest af bæjarstjórn. Þann 29. júní sl. samþykkti bæjarráð tveggja vikna frest til að ganga frá kaupsamningi til að tilboðshafar gætu lokið við fjármögnun. Tilboðshafar hafa nú óskað eftir fresti fram yfir miðjan ágúst til að ljúka við fjármögnun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita umbeðinn frest til 17. ágúst nk.

9.
Umboð til áritunar á lóðaleigusamning
Málsnúmer 202607039
Fyrir ráðinu lá umboð til áritunar á lóðarleigusamninga fyrir sviðsstjóra umhverfis- og framvkæmdasviðs, byggingarfulltrúa og skipulags- og umhverfisfulltrúa til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að veita sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs, byggingarfulltrúa og skipulags- og umhverfisfulltrúa fullt umboð til undirritunar lóðarleigusamninga. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

10.
Útboð á skólamat
Málsnúmer 202605162
Farið yfir minnisblað sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs um niðurstöðu útboðs á skólamat. Eitt tilboð barst frá Einsa Kalda veisluþjónustu ehf. og var það 6% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka tilboðinu. Bæjarráð tekur fram að við gerð fjárhagsáætlunar 2027 mun sveitarfélagið áfram gera ráð fyrir sínum 25% hlut í kostnaði við skólamáltíðir en áréttar að ef ríkið tekur ákvörðun um að hætta að greiða sinn 75% hlut í skólamáltíðunum, líkt og til stendur um næstu áramót, mun sá kostnaður falla á forráðamenn.

11.
Heimsendur matur til eldri borgara - útboð
Málsnúmer 202606059
Farið yfir minnisblað sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs um niðurstöðu útboðs á heitum mat fyrir eldri borgara. Eitt tilboð barst frá AR veitingum ehf. og var það 4% undir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka tilboðinu.

12.
Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 200804058
Bæjarstjóri fór yfir efni bréfs sem sent var fyrir hönd bæjarstjórnar á mennta- og barnamálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra varðandi áskorun bæjarstjórnar um endurskoðun lagaumhverfis vegna vinnuskóla sveitarfélaga. Í bréfinu eru settar fram áhyggjur af því að núverandi reglur um aldursmörk leiði til mismununar barna innan sama árgangs og óskað eftir því að ráðuneytin taki málið til skoðunar með það að markmiði að tryggja jafnræði barna til þátttöku í vinnuskóla.

Þá fór bæjarstjóri yfir svarbréf varðandi málið sem barst frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem fram kemur að aldursviðmiðið byggir á EES-reglum um vinnuvernd barna og ungmenna. Ráðuneytið hyggst því ekki endurskoða gildandi lagaákvæði um lágmarksaldur þátttakenda á vinnumarkaði.

Bæjarráð lýsir vonbrigðum með að ráðuneytið sjái sér ekki fært að gera neitt í málinu og leggur til við fjölskyldu- og tómstundaráð að fyrirkomulag vinnuskólans verði endurskoðað fyrir næsta sumar. Ráðið felur bæjarstjóra að senda erindi til umboðsmanns barna vegna málsins.

13.
Lengd viðvera eftir skóla
Málsnúmer 200706207
Máli vísað til bæjarráðs frá fjölskyldu- og tómstundaráði. Um er að ræða 1. mál á 331. fundi frá 14. júlí sl. og varðar um viðbótarfjármagn til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu í lengdri viðveru eftir skóla fyrir fötluð börn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að verða við erindinu og felur fjármálastjóra, í samráði sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs, að vinna viðauka til að mæta kostnaði. Einnig samþykkir bæjarráð að gera ráð fyrir þessum viðbótarkostnaði við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.

14.
Umbætur til hagræðingar
Málsnúmer 202511044
Stýrihópum sem unnu að tillögum til hagræðingar var falið að kostnaðarmeta þær. Við nánari yfirferð hefur komið í ljós að mikilvægt er að vinna tímasetta aðgerðaáætlun fyrir hverja tillögu og leggja mat á væntanlega hagræðingu af einstökum aðgerðum. Í þeirri vinnu þarf m.a. að rýna fyrirliggjandi gögn, endurmeta gjaldskrár, yfirfara verkferla og meta aðra þætti sem kunna að hafa áhrif á framkvæmdina. aðgerðirnar séu raunhæfar og hver fjárhagslegur og rekstrarlegur ávinningur þeirra geti orðið. Lagt er til að forstöðumenn vinni slíkar aðgerðaáætlanir í samráði við viðkomandi sviðsstjóra.
Bæjarráð er sammála því að næsta skref sé að vinna aðgerðaáætlanir og skulu skil á þeim vera eigi síðar en 1. október 2026

15.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026
Málsnúmer 202607104
Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu er tilbúin og mun liggja frammi til skoðunar í afgreiðslu Ráðhúss frá og með 8. ágúst nk. Lögð fram tillaga um kjörstað og fjölda kjördeilda.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að kjörstaður verði í Barnaskóla Vestmannaeyja og að sveitarfélaginu verði sem fyrr skipt í tvær kjördeildir.

16.
Erindi frá Eyjatours, ósk um framlengingu á leigu og rekstri vegna Herjólfsbæjar
Málsnúmer 202603033
Drög að viðauka við samning um leigu og rekstur Herjólfsbæjar lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða samningsviðaukann.

17.
Erindi um Hótel við Hásteinsgryfju
Málsnúmer 202605004
Framhald af 9. máli á 3260. fundi bæjarráðs þann 8. júní sl. Þröstur B. Johnsen sækir um að fá úthlutað landi fyrir uppbyggingu á 120 herberja hótelbyggingu í Hásteinsgryfju. Umhverfis- og skipulagsráð vísaði málinu til bæjarráðs þar sem um er að ræða lóð sem ekki er til úthlutunar.

Bæjarráð fól stjórnsýslunni að yfirfara gögn og undirbúa málið til frekari umfjöllunar. Stjórnsýslan safnaði saman gögnum aftur til ársins 2011 ásamt því að ræða við umsækjanda og aðra aðila sem komu að málinu á þeim tíma og síðar. Bæjarstjóri og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fóru yfir málið. Miðað við umfang verkefnisins væri fyrsta skrefið að vinna viljayfirlýsingu í samræmi við sambærileg mál sem afgreidd hafa verið.

Bæjarráð leggur til að skoðuð verði gerð viljayfirlýsingar í tengslum við verkefnið að uppfylltum öllum þeim skilyrðum sem sveitarfélagið setur þegar um umfangsmikil uppbyggingaráform er að ræða á sérstökum reitum sem ekki eru til úthlutunar og hefur ekki verið úthlutað. Bæjarráð felur stjórnsýslunni að vinna málið áfram.

Viðhengi
Erindi ÞJ
18.
Erindi frá Ferðamálasamtökum Vestmannaeyja vegna samstarfs um markaðssetningu Vestmannaeyja
Málsnúmer 202603035
Samningur Vestmannaeyjabæjar og Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja vegna samstarfs um markaðssetningu Vestmannaeyja lagður fram til kynningar. Drög að samningnum voru samþykkt á síðasta fundi bæjarrráðs.
19.
Goslokahátíð 2026
Málsnúmer 202606150
Goslokahátíðin fór fram dagana 2.–5. júlí sl. í tilefni þess að 53 ár eru liðin frá goslokum. Dagskráin var fjölbreytt og vel heppnuð að vanda með menningar- og listviðburðum auk afþreyingar fyrir börn og fjölskyldur.
Bæjarráð vill koma á framfæri þakklæti til Goslokanefndar og starfsfólks bæjarins fyrir skipulagningu og umsjón með Goslokahátíðinni. Jafnframt þakkar ráðið öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem lögðu hátíðinni lið og þeim fjölmörgu sem þátt tóku í viðburðum hátíðarinnar.

20.
Fundargerðir til kynningar 2026
21.
Framkvæmdar- og hafnarráð Vestmannaeyja - 339
Málsnúmer FUN3265
Liðir 1 - 7 liggja fyrir til upplýsinga.
22.
Umhverfis- og skipulagsráðs - 441
Málsnúmer 202607110
Liðir 1 - 17 liggja fyrir til upplýsinga.
23.
Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja - 441
Málsnúmer FUN3265
Liður 1, Lengd viðvera eftir skóla, var afgreiddur í 13. máli.

Liðir 2 - 5 liggja fyrir til upplýsinga.
24.
Fræðsluráð Vestmannaeyja
Málsnúmer FUN3265
Liðir 1 - 5 liggja fyrir til upplýsinga.