Bæjarráð Vestmannaeyja
Siglingar eru hafnar í Landeyjahöfn en nýlegar mælingar sýna að hægt er að sigla við bestu aðstæður. Vegagerðin bindur vonir við að dýpkun í höfninni klárist á næstu dögum og hægt verði að hefja reglulegar siglingar að því loknu.
Samkvæmt upplýsingum Norlandair hefur nýting á fluginu verið mjög góð og oft eru biðlistar enda eingöngu um níu sæta vélar að ræða. Reynslan sýnir að fjölga þarf sætum, auka tíðni flugs og lengja tímabilið á þessu ríkisstyrkta áælunarflugi.
Bæjarráð þakkar yfirferðina og hvetur bæjarbúa til að mæta á íbúafundinn þann 20. maí enda um eitt stærsta hagsmunamál samfélagsins að ræða.
Þessi vetur hefur verið sérstaklega erfiður og reynt mikið á samgöngurnar sem hefur haft mikil áhrif á íbúa og atvinnulíf. Tillögur að breytingum á höfninni eru væntanlegar frá dönsku straumfræðistofnunni innan fárra vikna og mikilvægt er að við Eyjamenn komum þeim skilaboðum skýrt á framfæri við ráðamenn á íbúafundinum að tryggja þurfi fjármagn í verkefnið og ljúka við framkvæmd Landeyjahafnar strax.
Farið var yfir stöðu og verkefni varðandi heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu og sjúkradeild, þar á meðal mönnun og mannauðsmál.
Farið var yfir stöðu og áframhaldandi umbætur í þjónustu á Hraunbúðum og húsnæðisáskoranir ræddar.
Þá var farið yfir stöðu geðheilbrigðisþjónustu og biðlista og áform um að sækja um fjárveitingar til eflingar þjónustu fyrir börn og ungmenni.
Bæjarráð þakkar forstjóra HSU fyrir fundinn og leggur áherslu á að grunnþjónusta í heilbrigðismálum sveitarfélagsins sé alltaf tryggð.
Bæjarráð þakkar yfirferðina.
Bæjarráð samþykkir að halda eigninni á söluskrá hjá fasteignasölunum. Komi tilboð í eignina mun bæjarráð taka afstöðu til þess á næsta fundi ráðsins eftir að tilboð berst.
Bæjarráð þakkar stýrihópnum vinnuna. Stýrihópnum er falið að kostnaðarmeta þær tillögur sem ráðið telur fýsilegt að skoða frekar og skila til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að framlengja samninginn.