Fara í efni

Afgreiðslufundur Skipulagsfulltrúa

26. fundur
24. ágúst 2026 kl. 16:21 - 16:29
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Surtsey - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir stækkun þyrlupallar
Málsnúmer 202608060
Vestmannaeyjabæ barst þann 26. júní 2026 umsókn um leyfi vegna stækkunar þyrlupalls í friðlandinu Surtsey. Núverandi þyrlupallur er 36 fermetrar og til stendur að stækka pallinn í um 100 fermetra, sbr. meðfylgjandi gögnum.
Íslenska ríkið er landeigandi Surtseyjar, Náttúruverndarstofnun fer með umsjón friðlandsins og Surtseyjarfélagið hefur umsjón með að efla rannsóknir í jarðvísindum og lífræði í eynni. Eyjan tilheyrir lögumdæmi Vestmannaeyjabæjar sem fer með skipulagsyfirvarld. Forsætisráðuneytið og Náttúruverndarstofnun hafa veitt samþykki vegna framkvæmdarinnar fyrir sitt leyti.
Umhverfis- og skipulagráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti framkvæmdina fyrir sitt leyti á 443 fundi sínum sem halinn var þann 18. ágúst 2026 og fól skipulagsfulltrúa útgáfu framkvæmdaleyfis.
Lagt er fram framkvæmdaleyfi vegna framkvæmdarinnar ásamt fylgigögnum.
Útgáfa framkvæmdaleyfis skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt.