Fara í efni

Afgreiðslufundur Skipulagsfulltrúa

27. fundur
2. október 2026 kl. 10:05 - 10:32
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - Afgreiðslubrunnur við Kleifarbryggju og lagnastæði að olíustöð
Málsnúmer 202609032
Olíudreifing ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir nýjum löndunar- og afgreiðslubrunni við Kleifarbryggju og lagningu lagnastæðis fyrir eldsneytislagnir þ.m.t. olíulögn að lóð við Eiðið 2, sbr. meðfylgjandi gögnum.
Útgáfa framkvæmdaleyfis skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt.
2.
Helgafellsbraut 18 - Umsókn um stækkun á innkeyrslu
Málsnúmer 202609078
Sigdór Yngvi Kristinsson fyrir hönd lóðarhafa við Helgafellsbraut 18 sækir um að breykka innkeyrslu á lóð og úrtöku í kanstein 7,5 að breidd frá norðurmörkum lóðar sbr. meðfylgjandi teikningum.
Samþykki er veitt fyrir innkeyrslu og úrtöku í kantstain að hámarki 7,5 metra sbr. Vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantsteina.
Breytingar á gangstétt eða lögnum vegna framkvæmda skulu vera í samráði við Umhverfis- og framkvæmdasvið. Allur kostnaður í tengslum við innkeyrslur og bílastæði er á kostnað lóðarhafa. Starfsfólki er falið að ræða við lóðarhafa varðandi útfærslu á innkeyrslu og úrtöku úr kantstein.
3.
Goðahraun 13 - Umsókn um úrtöku í kantstein
Málsnúmer 202609148
Ívar Unnsteinsson fyrir hönd lóðarhafa við Goðahraun 13 sækir um úrtöku á kantstein fyrir innkeyrslu, 7 metra að breidd, sbr. meðfylgjandi afstöðumynd.
Samþykki er veitt fyrir innkeyrslu og úrtöku í kantstain 7 metra að breidd.