Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa
92. fundur
5. nóvember 2026
kl.
11:00
-
11:37
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson
starfsmaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Rannveig Ísfjörð
starfsmaður
Dagskrá
1.
Brekastígur 33 - umsókn um byggingarleyfi
Frestað erindi frá 91. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa tekið fyrir að nýju.
Páll H. Zóphóníasson, fyrir hönd lóðarhafa að Brekastíg 33, sækir um byggingarleyfi vegna endurbóta og breytinga á húsnæðinu. Fyrirhugað er að endurnýja timburvirki hússins, breyta innra skipulagi og hækka húsið um 15 cm án þess að breyta þakhalla. Jafnframt er gert ráð fyrir breytingum á gluggum og uppsetningu svala. Húsið var byggt árið 1925 og því var leitað umsagnar Minjastofnunar Íslands, sem gerir ekki athugasemd við breytingarnar.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 .
2.
Miðgerði 6 - umsókn um byggingarleyfi
Bragi Magnússon fyrir hönd lóðarhafa að Miðgerði 6 sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu.
Helstu stærðir: 271,4 m² og 900,6 m³. Nýtingarhlutfall lóðar er 0,38.
Teikning: Bragi Magnússon

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara að brugðist verði við athugasemdum.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
3.
Viðlagafjara 1 - umsókn um byggingarleyfi
Laxey ehf, sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu fiskeldiskerja við Viðlagafjöru 1, alls 5.777,8 m² að brúttóflatarmáli. Byggð verða fjögur fiskeldisker í matshluta 13 (ker nr. 21,22,23 og 24) með þjónustubyggingu sem tengir saman öll fjögur kerin. Byggingin er í notkunarflokki 1 og í umfangsflokki 2.
Teikning: Bragi Magnússon
Brunahönnun: Efla
Teikning: Bragi Magnússon
Brunahönnun: Efla
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara að brugðist verði við athugasemdum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
4.
Vigtartorg - almenningssalerni - umsókn um byggingarleyfi
Hafnarstjóri, fyrir hönd Vestmannaeyjahafnar, sækir um byggingarleyfi vegna breytinga og stækkunar á almenningssalernisaðstöðu við Vigtartorg. Framkvæmdirnar fela í sér viðbyggingu við núverandi salernisaðstöðu þar sem komið er fyrir viðbótarsalernum, þvagskálaraðstöðu, skolherbergi og gangi. Jafnframt er gert ráð fyrir skábraut til að bæta aðgengi að húsnæðinu.
Helstu stærðir viðbyggingar: 51,2 m² og 116,5 m³. Í hönnun að Vigtartorgi eftir Pétur Jónsson kemur fram að gert er ráð fyrir salernum við torgið.
Teikning: Björgvin Björgvinsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráform vegna breytinga og stækkunar á salernisaðstöðu við höfnina samkvæmt framlögðum aðaluppdráttum með fyrirvara að brugðist verði við athugasemdum.
5.
Skildingavegur 14 - umsókn um byggingarleyfi
Erindi tekið fyrir að lokinni umfjöllun í umhverfis- og skipulagsráði. Björgvin Björgvinsson sækir um byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði að Skildingavegi 14. Sótt er um að breyta 2. hæð í íbúð og koma fyrir frönskum svölum á austurgafl. Húsið er steinsteypt, tvær hæðir, og er áfram gert ráð fyrir skemmu á 1. hæð, sbr. innsend gögn.
Heildarflatarmál hússins er 232,3 m² brúttó, þar af er 1. hæð 118,1 m² og 2. hæð 114,2 m². Lóðarstærð er 118,4 m² og nýtingarhlutfall 1,92.
Gert er ráð fyrir að nýta almenn bílastæði. Sorp verður staðsett á bæjarlandi í porti norðan megin við húsið.
Umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir vegna svalanna. Vegagerðin lagðist gegn upphaflegri tillögu um svalir á austurgafli vegna nálægðar við veghelgunar- og öryggissvæði Skildingavegar. Í framhaldi hefur Vegagerðin staðfest að hún geri ekki athugasemd við franskar svalir með útskögun að hámarki 30 cm.

Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
6.
Faxastígur 46 - Tilkynningaskyld mannvirkjagerð - undanþegin byggingaheimild og leyfi
Björgvin Björgvinsson, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, tilkynnir um innanhússbreytingar húsnæðis við Faxastíg 46. Framkvæmdirnar fela í sér breytingar á innra skipulagi með uppsetningu og tilfærslu léttra milliveggja, án breytinga á burðarvirki. Jafnframt verður komið fyrir nýrri eldhúsaðstöðu og salernisaðstaða lagfærð.
Teikning: Björgvin Björgvinsson
Teikning: Björgvin Björgvinsson
Erindi samþykkt.
7.
Sólhlíð 6 - breytt notkun
Sindri Snær Guðjónsson og Guðrún Elfa Jóhannsdóttir lóðarhafar að Sólhlíð 6, neðri hæð sækja um heimild til að breyta skráðri notkun húsnæðis úr tannlæknastofu í íbúð.
Húsnæðið var áður samþykkt sem íbúð og liggja fyrir eldri samþykktir aðaluppdrættir sem sýna þá notkun. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á húsnæðinu. Breytingin er í samræmi við gildandi deiliskipulag. Fyrirliggur samþykki eiganda efri hæðar við Sólhlíð 6.

Byggingarfulltrúi samþykkir breytta notkun úr tannlæknastofu í íbúð.