Fara í efni

Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa

91. fundur
27. október 2026 kl. 12:30 - 12:44
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Brekastígur 33 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 202609052
Páll H. Zóphóníasson, fyrir hönd lóðarhafa að Brekastíg 33, sækir um byggingarleyfi vegna endurbóta og breytinga á húsnæðinu. Fyrirhugað er að endurnýja timburvirki hússins, breyta innra skipulagi og hækka húsið um 15 cm án þess að breyta þakhalla. Jafnframt er gert ráð fyrir breytingum á gluggum og uppsetningu svala.
Erindi frestað. Vísað til athugasemda.
2.
Flatir 25 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 202601125
Björgvin Björgvinsson, fyrir hönd lóðarhafa að Flötum 27, sækir um byggingarleyfi fyrir 167,5 m² viðbyggingu við núverandi iðnaðarhúsnæði. Viðbyggingin er á einni hæð og verður nýtt sem geymsla fyrir starfsemi blikksmiðju.
Erindi frestað. Vísað til athugasemda.