Fara í efni

Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa

90. fundur
9. október 2026 kl. 09:00 - 09:17
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Brekastígur 31 - Tilkynningaskyld mannvirkjagerð - undanþegin byggingaheimild og leyfi
Málsnúmer 202610028
Kristinn Guðmundsson, lóðarhafi að Brekastígi 31, tilkynnir framkvæmd sem felst í að saga niður úr glugga í stofu og koma þar fyrir útihurð, ásamt timburpalli og tröppum að bakgarði sbr. innsend gögn. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa að Brekastígi 33 þar sem fyrirhugaður pallur liggur nær lóðarmörkum en 3,0 m.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framkvæmdina. Erindi samþykkt.
2.
Skildingavegur 5 - Tilkynningaskyld mannvirkjagerð - undanþegin byggingaheimild og leyfi
Málsnúmer 202610024
Hafnarstjóri, fyrir hönd Vestmannaeyjahafnar, tilkynnir framkvæmd við Hafnarskrifstofur að Skildingavegi 5 sem felst í endurnýjun og breytingum á gluggum og útihurðum, auk utanhússklæðningar sbr. innsend gögn.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framkvæmdina. Erindi samþykkt.
3.
Illugagata 69 - Umsókn um byggingarleyfi - bílskúr
Málsnúmer 202505052
Tekið fyrir að lokinni umfjöllun í umhverfis- og skipulagsráði, ráðið samþykkti erindið og féll frá grenndarkynningu sbr. 3. málsgrein 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
Heiðrún Lára Jóhannsdóttir Illugagötu 69 leggur inn nýja aðaluppdrætti af bílgeymslu og breytingu á núverandi bílgeymslu í herbergi og geymslu í samræmi við framlögð gögn. Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum innan lóðar.
Stærðir: Bílgeymsla 56,5m².
Teikning: Sigurður Smári Benónýsson
Erindi samþykkt.
4.
Vesturvegur 25
Málsnúmer 202607196
Davíð Kr. Pitt, fyrir hönd lóðarhafa að Vesturvegi 25, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu þriggja íbúða fjölbýlishúss á lóðinni.
Húsið er á þremur hæðum. Á jarðhæð er ein íbúð og lagna-/inntaksrými. Á annarri hæð er ein íbúð og á þriðju hæð/rishæð er ein íbúð. Geymslur eru á lóðinni og byggðar inn í landhalla og tilheyra sérstökum matshluta.
Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum á lóðinni.
Heildar brúttóflatarmál matshluta 01 er 305,3 m² og heildar brúttórúmmál 930,6 m³. Geymslur í matshluta 02 eru 20 m² brúttó. Lóðarstærð er 288 m², nýtingarhlutfall 1,13.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara að brugðist verði við athugasemdum byggingarfulltrúa.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.