Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa
89. fundur
25. september 2026
kl.
09:00
-
09:16
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Dagný Hauksdóttir
starfsmaður
Rannveig Ísfjörð
starfsmaður
Dagskrá
1.
Viðlagafjara 3
Tekið fyrir að nýju erindi Laxey ehf. um byggingarleyfi fyrir byggingu seiðaeldisstöðvar að Viðlagafjöru 3, alls 9.303,8 m² að brúttóflatarmáli. Í byggingunni verða m.a. eldisker, tæknirými, skrifstofur, búnings- og starfsmannaaðstaða, eldhús og önnur þjónusturými tengd starfseminni. Byggingin er skilgreind í notkunarflokki 1 og umfangsflokki 2.
Erindinu var áður vísað til umhverfis- og skipulagsráðs vegna þess að hámarkshæð mannvirkis er 0,39 m yfir leyfilegri hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi og vegna frávika frá deiliskipulagi er varða uppbrot í húsveggi.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti umrædd frávik með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Teikning: Bragi Magnússon
Brunahönnun: Efla

Byggingaráform samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.