Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa
88. fundur
18. september 2026
kl.
10:30
-
10:52
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Rannveig Ísfjörð
starfsmaður
Dagskrá
1.
Viðlagafjara 1. Umsókn um byggingarleyfi - fóðurgeymsla m.hl.02
Laxey ehf. sækir um stækkun á matshluta 02 um er að ræða viðbyggingar við núverandi fóðurgeymslu, Viðlagafjöru 1, í samræmi við framlögð gögn. Matshluti 02 verður eftir stækkun samtals 1.557,8 m² að brúttóflatarmáli. Stækkunin er 412 m².
Teikning: Samúel Smári Hreggviðsson
Teikning: Samúel Smári Hreggviðsson
Erindi samþykkt.
2.
Viðlagafjara 3
Laxey ehf, sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu seiðaeldisstöðvar, alls 9.303,8 m² að brúttóflatarmáli. Í byggingunni verða m.a. eldisker, tæknirými, skrifstofur, búnings- og starfsmannaaðstaða, eldhús og önnur þjónusturými tengd starfseminni. Byggingin er skilgreind í notkunarflokki 1 og umfangsflokki 2.
Teikning: Bragi Magnússon
Brunahönnun: Efla
Teikning: Bragi Magnússon
Brunahönnun: Efla
Byggingarfulltrúi vísar erindi til umhverfis- og skipulagsráðs vegna hámarkshæðar sem er 0,39m yfir leyfilegri hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi og vegna frávika frá deiliskipulagi er varða uppbrot í húsveggi.