Fara í efni

Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa

87. fundur
11. september 2026 kl. 10:30 - 11:03
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Boðaslóð 23
Málsnúmer 202606171
Tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Bragi Magnússon, fyrir hönd lóðarhafa að Boðaslóð 23, sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á núverandi bílgeymslu. Bílgeymslan er stækkuð til suðurs og vesturs um 25,4 m² brúttó (17,9 m² nettó), þannig að heildarstærð hennar verður 65,9 m² brúttó. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

Teikning: Bragi Magnússon
Byggingaráform samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
2.
Búhamar 22
Málsnúmer 202607130
Tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Sigurður Smári Benónýsson sækir, fyrir hönd lóðarhafa að Búhamri 22, um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi ásamt stakstæðri bílgeymslu. Húsið er einnar hæðar með risþaki. Heildarstærð mannvirkjanna er 183,8 m² brúttó (íbúð 133,3 m² og bílgeymsla 50,5 m²). Nýtingarhlutfall lóðar er 0,27. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki nágranna aðliggjandi lóðar.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Teikning: Sigurður Smári Benónýsson
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
3.
Hrauntún 31
Málsnúmer 202607014
Tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu. Engar formlegar athugasemdir bárust. Ábending barst þó um lagnir sem liggja undir því svæði þar sem fyrirhuguð viðbygging verður staðsett.


Bragi Magnússon sækir, fyrir hönd lóðarhafa að Hrauntúni 31, um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishús. Viðbyggingin tengir saman núverandi íbúðarhús og bílgeymslu og stækkar íbúðarhúsið með þremur svefnherbergjum og þvottahúsi. Stærð viðbyggingar er 79,9 m2. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki nágranna aðliggjandi lóðar.

Teikning: Bragi Magnússon
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að færa þarf viðkomandi lagnir áður en framkvæmdir við viðbygginguna hefjast, kostnaður vegna tilfærslu á lögnum fellur á lóðarhafa/HS Veitur.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
4.
Radarhýsi á Stórhöfða - Tilkynningaskyld mannvirkjagerð - undanþegin byggingaheimild og leyfi
Málsnúmer 202608150
Landhelgisgæsla Íslands tilkynnir um fyrirhugaða uppsetningu radarhýsis á Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Hýsið verður staðsett um 48 m suðsuðvestur af Stórhöfðavita, á landi í eigu íslenska ríkisins sem er í umsjón Vegagerðarinnar.

Framkvæmdin er liður í uppbyggingu og eflingu ratsjárvöktunar Landhelgisgæslunnar á hafsvæðinu við Vestmannaeyjar. Um er að ræða sérhannað hýsi fyrir ratsjár- og fjarskiptabúnað ásamt tilheyrandi tengingum og búnaði.

Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar fyrir staðsetningu mannvirkisins og jákvæð umsögn Geislavarna ríkisins vegna fyrirhugaðs ratsjárbúnaðar.

Erindið er tekið fyrir sem tilkynningarskyld framkvæmd, sbr. innsend gögn.
Erindi samþykkt.
5.
Viðlagafjara 1 matshluti 12
Málsnúmer 202608145
Bragi Magnússin fyrir hönd Laxey ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjórum fiskeldiskerjum í matshluta 12 (ker nr. 17,18,19,20) með
þjónustubyggingu sem tengir saman öll fjögur kerin. Byggingin er í notkunarflokki 1 og í umfangsflokki 2.

Brúttóflötur 5.777,8 m²
Brúttórúmmál 50.943,1 m³
Birt flatarmál 5.762,6 m²

Teikning: Bragi Magnússon
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.