Fara í efni

Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa

86. fundur
27. ágúst 2026 kl. 10:30 - 10:44
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Skildingavegur 14
Málsnúmer 202605202
Björgvin Björgvinsson sækir um byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði að Skildingavegi 14. Sótt er um að breyta 2. hæð í íbúð og koma fyrir frönskum svölum á austurgafl. Húsið er steinsteypt, tvær hæðir, og er áfram gert ráð fyrir skemmu á 1. hæð, sbr. innsend gögn.
Heildarflatarmál hússins er 232,3 m² brúttó, þar af er 1. hæð 118,1 m² og 2. hæð 114,2 m². Lóðarstærð er 118,4 m² og nýtingarhlutfall 1,92.
Gert er ráð fyrir að nýta almenn bílastæði. Sorp verður staðsett á bæjarlandi í porti norðan megin við húsið.
Umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir vegna svalanna. Vegagerðin lagðist gegn upphaflegri tillögu um svalir á austurgafli vegna nálægðar við veghelgunar- og öryggissvæði Skildingavegar. Í framhaldi hefur Vegagerðin staðfest að hún geri ekki athugasemd við franskar svalir með útskögun að hámarki 30 cm.

Teikning: Björgvin Björgvinsson
Umsóknin felur í sér afnot af bæjarlandi fyrir sorpílát. Umhverfis- og skipulagsráð tekur afstöðu til afnota af bæjarlandi.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 .