Fara í efni

Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa

85. fundur
12. ágúst 2026 kl. 11:03 - 11:27
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Miðgerði 8
Málsnúmer 202607156
Bragi Magnússon sækir, fyrir hönd lóðarhafa að Miðgerði 8, um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi með innbyggðri bílgeymslu. Húsið er ein hæð og kjallari, sbr. innsend gögn.
Heildarflatarmál hússins er 279,6 m² . Lóðarstærð er 678,9 m² og nýtingarhlutfall lóðar 0,41. Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum, þar af einu í bílgeymslu.

Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað til HMS liggur fyrir.

Teikning: Bragi Magnússon
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum byggingarfulltrúa er varða ljósvist og skráningartöflu.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir, þar með talið lóðaruppdráttur, undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
2.
Skildingavegur 14
Málsnúmer 202605202
Björgvin Björgvinsson sækir um byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði að Skildingavegi 14. Sótt er um að breyta 2. hæð í íbúð og koma fyrir frönskum svölum á austurgafl. Húsið er steinsteypt, tvær hæðir, og er áfram gert ráð fyrir skemmu á 1. hæð, sbr. innsend gögn.
Heildarflatarmál hússins er 232,3 m² brúttó, þar af er 1. hæð 118,1 m² og 2. hæð 114,2 m². Lóðarstærð er 118,4 m² og nýtingarhlutfall 1,92.
Gert er ráð fyrir að nýta almenn bílastæði.
Umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir vegna svalanna. Vegagerðin lagðist gegn upphaflegri tillögu um svalir á austurgafli vegna nálægðar við veghelgunar- og öryggissvæði Skildingavegar. Í framhaldi hefur Vegagerðin staðfest að hún geri ekki athugasemd við franskar svalir með útskögun að hámarki 30 cm.

Teikning: Björgvin Björgvinsson
Erindi frestað.