Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa
84. fundur
22. júlí 2026
kl.
10:20
-
11:00
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Dagný Hauksdóttir
starfsmaður
Rannveig Ísfjörð
starfsmaður
Dagskrá
1.
Búhamar 22
Sigurður Smári Benónýsson sækir, fyrir hönd lóðarhafa að Búhamri 22, um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi ásamt stakstæðri bílgeymslu. Húsið er einnar hæðar með risþaki. Heildarstærð mannvirkjanna er 183,8 m² brúttó (íbúð 133,3 m² og bílgeymsla 50,5 m²). Nýtingarhlutfall lóðar er 0,27. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki nágranna aðliggjandi lóðar.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Teikning: Sigurður Smári Benónýsson
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Teikning: Sigurður Smári Benónýsson
Gögn liggja fyrir í samræmi við ákvæði 2.4.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
2.
Hrauntún 31
Bragi Magnússon sækir, fyrir hönd lóðarhafa að Hrauntúni 31, um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishús. Viðbyggingin tengir saman núverandi íbúðarhús og bílgeymslu og stækkar íbúðarhúsið með þremur svefnherbergjum og þvottahúsi. Stærð viðbyggingar er 79,9 m2. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki nágranna aðliggjandi lóðar.
Teikning: Bragi Magnússon
Teikning: Bragi Magnússon
Gögn liggja fyrir í samræmi við ákvæði 2.4.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 að því gefnu að brugðist verði við athugasemdum byggingarfulltrúa.
3.
Boðaslóð 23
Bragi Magnússon, fyrir hönd lóðarhafa að Boðaslóð 23, sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á núverandi bílgeymslu. Bílgeymslan er stækkuð til suðurs og vesturs um 25,4 m² brúttó (17,9 m² nettó), þannig að heildarstærð hennar verður 65,9 m² brúttó. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki aðliggjandi lóðarhafa.
Teikning: Bragi Magnússon
Teikning: Bragi Magnússon
Gögn liggja fyrir í samræmi við ákvæði 2.4.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
4.
Búhamar 90 - Tilkynningaskyld mannvirkjagerð - undanþegin byggingaheimild og leyfi - smáhýsi
Baldvin Þór Sigurbjörnsson sækir um leyfi til að staðsetja smáhýsi á lóðinni að Búhamri 90. Um er að ræða óupphitað smáhýsi, ætlað til geymslu, sem er undir 15m² að grunnfleti og lægra en 2,50m að hæð. Smáhýsið verður staðsett á baklóð, nær lóðarmörkum en 3,0 m. Skriflegt samþykki eiganda aðliggjandi lóðar liggur fyrir.
Byggingarfulltrúi vísar erindi til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs. Að mati byggingarfulltrúa uppfyllir smáhýsið skilyrði um stærð, hæð og staðsetningu á baklóð. Fyrir liggur samþykki eiganda aðliggjandi lóðar og grenndarkynning er því ekki talin nauðsynleg. Eigandi ber ábyrgð á að mannvirkið uppfylli ákvæði byggingarreglugerðar og gangi ekki á rétt nágranna.
5.
Áshamar 55
Tekið fyrir að lokinni umræðu í umhverfis- og skipulagsráði. Ráðið samþykkti erindið og féll frá grenndarkynningu sbr. 3. málsgrein 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Bragi Magnússon sækir um byggingarleyfi fyrir hönd lóðarhafa að Áshamri 55 vegna stækkunar á bílskúr og byggingar sólhúss á baklóð. Fyrirhuguð stækkun bílskúrs er 10,5 m² og sólhúss 24,8 m². Sbr. innsend gögn. Fyrir liggur undirritað samþykki allra nágranna í raðhúsalengjunni. Auk nágranna við Bessahraun 13.
Teikningar: Bragi Magnússon
Bragi Magnússon sækir um byggingarleyfi fyrir hönd lóðarhafa að Áshamri 55 vegna stækkunar á bílskúr og byggingar sólhúss á baklóð. Fyrirhuguð stækkun bílskúrs er 10,5 m² og sólhúss 24,8 m². Sbr. innsend gögn. Fyrir liggur undirritað samþykki allra nágranna í raðhúsalengjunni. Auk nágranna við Bessahraun 13.
Teikningar: Bragi Magnússon
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.