Fara í efni

Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa

81. fundur
4. júní 2026 kl. 11:35 - 11:30
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Fjólugata 8
Málsnúmer 202604222
Erindi tekið fyrir eftir umræður í umhverfis- og skipulagsráði. Sigurður Smári Benónýsson sækir um byggingarleyfi fyrir sólhúsi fyrir hönd lóðarhafa að FJólugötu 8, sbr. innsend gögn. Fyrir liggur samþykki nágranna. Stærðir: 13 m2. Teikning: Sigurður Smári Benónýsson
Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.
2.
Heiðarvegur 31 - Umsókn um smáhýsi
Málsnúmer 202606039
Vilhjálmur Már Jónsson sækir um tímabundið leyfi til að staðsetja smáhýsi á lóð sinni að Heiðarvegi 31 á meðan framkvæmdir við uppbyggingu við Boðaslóð 8-10 standa yfir.
Um er að ræða skýli sem er að hámarki 15m2 að stærð og 2,5m að hæð.
Skýlið yrði staðsett á baklóð, sbr. meðfylgjandi gögn, samþykki liggur fyrir frá aðliggjandi lóðarhafa.
Erindi samþykkt.