Fara í efni

Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa

78. fundur
12. mars 2026 kl. 00:00 - 13:30
í kjallara Ráðhúss
Nefndarmenn
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Strandvegur 65 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 202511069
Erindi tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu.
SV65 ehf. sækir um breytta notkun á húsnæði við Strandveg 65. Um er að ræða breytingar á 2. og 3. hæð hússins þar sem áður var líkamsræktarstöð í níu vinnustofur. Gengið er inn í þær upp stiga frá 1. hæð. Í hverri vinnustofu er gert ráð fyrir eldunaraðstöðu og salerni með sturtu. Svölum hefur verið bætt við frá vinnustofum.
Sótt er um frávik frá kröfum um algilda hönnun á grundvelli 6.1.5 gr. byggingarreglugerðar vegna sérstaka erfiðleika við útfærslu í eldra húsi.

Stærðir
Flatarmál húss: 1032,0 m2

Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010, að því gefnu að brugðist verði við athugasemdum. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.