Fara í efni

Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma - Viðburður 4

Dags
28. febrúar
Kl.
11:00 - 12:00
Staðsetning
Sagnheimar
Fjórði þáttur sýningarraðarinnar “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður sýndur laugardaginn 28. febrúar kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Á undan verður sýnt stutt myndbrot, líkt og á fyrri sýningum. Að þessu sinni fjöllum við um strand breska togarans Star of the East í Höfðavík þann 3. mars 1946. Mannbjörg varð en togarinn færðist af skerinu í óveðri nokkru síðar og sökk. Þátturinn að þessu sinni sýnir Þjóðhátíð um 1970, Lúðrasveit Vestmannaeyja, knattspyrnuleik við Hástein, sauðfjárbændur, vertíðarlífið og fleira áhugavert. Líkt og á fyrri sýningum mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, yfirfór myndefnið og sá um úrvinnslu verkefnisins, sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Mjög góð aðsókn hefur verið á fyrstu þremur sýningum. Þrjú stór sjónvörp á staðnum gerir upplifunina enn betri.
Deildu