Fara í efni

Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma - Viðburður 2

Dags
31. janúar
Kl.
11:00 - 12:00
Staðsetning
Sagnheimar
.
Deildu

Við höldum áfram með sýningarröðina, Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma, þar sem lifandi myndir frá Vestmannaeyjum sem teknar voru á árunum 1924-1970 en megináherslan er frá árunum 1950-1970. Fjöldi fólks lagði leið sína í Sagnheima síðast og því höfum við bætt við sjónvarpi og eru þau nú þrjú. Myndefnið er mjög fjölbreytt en í þessari sýningu sjáum við efni frá Þjóðhátíð, leikskólum, listsýningar, bryggjulífi, skátunum og fl. Kvikmyndirnar tóku þeir Loftur Guðmundsson, ljósmyndari, Sveinn Ársælsson, Friðrik Jesson, Guðjón Ólafsson, Ósvald Knudsen ásamt fleirum. Arnar Sigurmundsson mun greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, yfirfór myndefnið og sá um úrvinnslu. Verkefnið var styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Sýningin ásamt yfirferð verður laugardaginn 31. janúar kl. 11 í Sagnheimum og lýkur kl. 12.