Í tilefni þess að Kristján Óskarsson, betur þekktur sem Stjáni á Emmunni, varð áttræður hinn 13. maí sl. verður sýnt brot af því besta úr hans einstaka safni viðtala og myndefnis. Þetta er kjörið tækifæri til að heiðra það mikla og óeigingjarna starf sem hann hefur unnið við að varðveita sögu og minningar Eyjafólks Dagskráin verður haldin í Sagnheimum laugardaginn 6. júní klukkan 11:00, á sjálfri sjómanndagshelginni. Valdir verða um 3 mínútna bútar úr 12 viðtölum, en þau elstu eru frá árinu 1990 og geyma ómetanlegar heimildir um fólk, líf og samfélag í Eyjum. Einnig verða sýndar eldri kyrrmyndir af fólki og húsum í Vestmannaeyjum ásamt skýringum sem Kristján vann á sínum tíma með Sævaldi Elíassyni og Áka Heinz Haraldssyni. Sagnheimar stóðu fyrr á þessu ári fyrir sýningarröðinni Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma, þar sem sýndir voru átta þættir við frábærar undirtektir og verður þessi dagskrá hugsuð sem sú síðasta í þeirri sýningarröð.
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma- Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dags
6. júní
Kl.
11:00 - 12:00
Staðsetning
Sagnheimmar
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni við Eyjafólk.
