Fara í efni

Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma

Dags
14. febrúar
Kl.
11:00 - 12:00
Staðsetning
Sagnheimar
Sagnheimar halda áfram með sýningarröðina, Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma, lifandi myndir frá Vestmannaeyjum sem teknar voru að mestu á árunum 1950-1970.
Deildu

Kvikmyndirnar tóku þeir Loftur Guðmundsson, Sveinn Ársælsson, Friðrik Jesson, Guðjón Ólafsson, Ósvald Knudsen og fleiri. Eins og fyrr mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Sýningin ásamt yfirferð verður laugardaginn 14. febrúar kl. 11 í Sagnheimum og lýkur um kl. 12. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands