Fara í efni

VestExpo27

Dags
1. júlí - 2. júlí
Staðsetning
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
Atvinnu- og mannlífssýningin VestExpo27 verður haldin í Íþróttahöll Vestmannaeyja dagana 1.–2. júlí 2027. Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á þann mikla fjölbreytileika sem einkennir atvinnulíf, þjónustu, framleiðslu, mannlíf og menningu í Vestmannaeyjum og um leið vekja jákvæða athygli á samfélaginu, tækifærunum og þeirri öflugu starfsemi sem þar fer fram. Frábær viðbót við Goslokavikuna!
Deildu

VestExpo27 er hugsuð sem frábær viðbót við þá mögnuðu dagskrá sem Goslokavikan hefur upp á að bjóða  þeim fjölmörgu gestum og íbúum Vestmannaeyja. Markmiðið er að sýningin falli vel að þeirri einstöku stemningu sem ríkir í Eyjum þessa daga og bæti enn frekar við fjölbreytni dagskrárinnar.

Með VestExpo27 skapast nýr vettvangur þar sem atvinnulíf, mannlíf, menning, nýsköpun og samfélagið í Vestmannaeyjum fá að njóta sín undir einu þaki. Sýningin verður opin bæði heimamönnum og gestum Goslokavikunnar og gefur þeim tækifæri til að kynnast enn betur því öfluga atvinnu- og mannlífi sem þrífst í Vestmannaeyjum.

VestExpo27 er ætluð fjölbreyttum hópi fyrirtækja og stofnana. Þar má meðal annars nefna þjónustufyrirtæki, iðnfyrirtæki, matvælafyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, ferðaþjónustufyrirtæki, rannsóknaraðila, frumkvöðla og sprotafyrirtæki.

Einnig eru veitufyrirtæki, skólar og menntastofnanir, opinberir þjónustuaðilar, félagasamtök, íþrótta- og menningarfélög hvött til þátttöku.

Fagleg og glæsileg umgjörð

Metnaður verður lagður í að VestExpo27 verði vönduð og faglega uppsett atvinnu- og mannlífssýning. Íþróttahöllinni verður breytt í glæsilegt sýningarsvæði þar sem sett verður upp vandað sýningarkerfi, sýningarbásar, lýsing, merkingar og önnur tæknileg og sjónræn umgjörð sem tilheyrir sýningum af þessari stærðargráðu.

Markmiðið er að skapa sýnendum fyrsta flokks aðstöðu til að kynna fyrirtæki sín, starfsemi, vörur og þjónustu og um leið gera upplifun gesta sem besta.

Á VestExpo27 gefst sýnendum kostur á að kynna starfsemi sína í sérstökum básum í Íþróttahöllinni. Jafnframt verður sýnendum heimilt að selja vörur og þjónustu beint á sýningunni.

VestExpo27 verður þannig ekki eingöngu hefðbundin atvinnusýning heldur lifandi vettvangur fyrir fyrirtæki, samfélag og fólk, þar sem atvinnulíf, menning, nýsköpun og mannlíf Vestmannaeyja koma saman undir einu þaki.

Skráning á gólfplássi hefst í október.

Skráning sýnenda og annarra þátttakenda hefst upp úr miðjum október 2026.

Samhliða skráningu verður heimasíða verkefnisins opnuð á www.vestexpo.is. Þar verður hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um sýninguna, meðal annars um opnunartíma, stærðir og útfærslur sýningarbása, verð, skráningu og aðra þjónustu fyrir sýnendur.