Fara í efni

Uppskeruhátíð Sumarlesturs Bókasafns Vestmannaeyja

Dags
29. ágúst
Kl.
13:00 - 15:00
Staðsetning
Bókasafn Vestmannaeyja
Lokahóf Sumarlestursins verður haldið laugardaginn n.k., 29. ágúst kl. 13 á Bókasafni Vestmannaeyja. Þar verður ýmislegt gert til skemmtunar til að fagna því hversu dugleg vestmannaeysk börn hafa verið að lesa í sumar. Þess má geta að metþátttaka var í sumar en 223 börn skráðu sig til leiks.
Deildu

Rithöfundurinn Embla Bachmann kemur og les úr bókum sínum auk þess sem hún kynnir bók sem mun koma út fyrir jólin. Dregnir verða vinningar úr miðunum sem krakkarnir skiluðu inn fyrir hverja lesna bók og þau sem skráðu sig í Sumarlesturinn fá öll glaðning frá Bókasafninu. Þema sumarlestursins í ár var kappakstur og var barnadeild Bókasafnsins skreytt í takt við þemað. Þar má til að mynda finna stóran kappakstursbíl sem hefur vakið mikla athygli í sumar. Þau sem mæta geta spreytt sig á því að keppa í kappakstri á bílabrautum frá síðustu öld, það verða myndir til að lita og svo verður bílasýning á planinu fyrir framan Bókasafnið. Léttar veitingar í boði.