Sumarlestur Bókasafns Vestmannaeyja
Dags
30. maí kl. 12:00 -
28. ágúst kl. 12:00
28. ágúst kl. 12:00
Staðsetning
Bókasafn Vestmannaeyja
Sumarlesturinn er í gangi í allt sumar eða frá 30. maí til 28. ágúst. Skráið lesturinn í lestrarhest og safnið límmiðum! Fyrir hverja bók sem er lesin er fylltur út miði sem er settur á kappakstursbrautina á Bókasafninu.

Þemað í ár er kappakstur og er Bókasafnið skreytt í takt við það.
Skráning fer fram í afgreiðslu Bókasafnsins en hægt er að skrá sig til leiks í allt sumar. Skráið lesturinn í lestrarhest (sem hægt er að nálgast á Bókasafninu) og safnið límmiðum!
Þegar hver bók er kláruð er fylltur út miði sem er eins og kappakstursbíll í laginu og hann settur á kappakstursbraut á Bókasafninu. Hver miði er líka happdrættismiði!
Athugið að Sumarlesturinn er opinn börnum á öllum aldri.