Fara í efni

Styrkleikar Krabbavarnar og Krabbameinsfélagsins

Dags
29. ágúst
Kl.
12:00 - 21:00
Staðsetning
Herjólfsdalur
Krabbavörn og Krabbameinsfélag Íslands standa fyrir Styrkleikum í annað sinn laugardaginn 29. ágúst kl. 12:00 - 21:00 í Herjólfsdal. Styrkleikarnir eru einstakur og fjölskylduvænn viðburður þar sem þátttakendur skiptast á að ganga fyrir fram ákveðna leið, hver á sínum hraða, í fyrir fram ákveðinn tíma. Styrkleikarnir eru táknræn áminning um mikilvægi þess að sýna stuðning og samstöðu í verki og minna á að enginn þarf að takast á við krabbamein einn. Yfir daginn verður boðið upp á fjölskyldudagskrá sem auglýst verður þegar nær dregur. Klukkan 20:00 hvetjum við alla Eyjamenn til að koma saman í Herjólfsdal og taka þátt í lokahring Styrkleikanna. Að göngunni lokinni verður kertafleyting á tjörninni þar sem við leyfum okkur að vera þakklát fyrir þá sem við höfum fengið að hafa hjá okkur og minnumst þeirra sem við höfum misst.
Deildu
Styrkleikarnir eru einstakur og fjölskylduvænn viðburður þar sem þátttakendur skiptast á að ganga fyrir fram ákveðna leið, hver á sínum hraða, í fyrir fram ákveðinn tíma. Styrkleikarnir eru táknræn áminning um mikilvægi þess að sýna stuðning og samstöðu í verki og minna á að enginn þarf að takast á við krabbamein einn. Yfir daginn verður boðið upp á fjölskyldudagskrá sem auglýst verður þegar nær dregur. Klukkan 20:00 hvetjum við alla Eyjamenn til að koma saman í Herjólfsdal og taka þátt í lokahring Styrkleikanna. Að göngunni lokinni verður kertafleyting á tjörninni þar sem við leyfum okkur að vera þakklát fyrir þá sem við höfum fengið að hafa hjá okkur og minnumst þeirra sem við höfum misst.