Námskeiðið er ætlað fullorðnum og hentar vel þeim sem vilja taka sín fyrstu skref í skák eða rifja upp gamla takta. Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að þekkja grunnatriði skákarinnar og hafa öðlast betri tilfinningu fyrir leiknum. Umfram allt er markmiðið þó að virkja leikgleðina og keppnisskapið.
Hvenær: Mánudaga og miðvikudaga kl. 20:00, í sex vikur frá 2. nóvember. Klukkustund í senn.
Hvar: Í húsnæði taflfélagsins að Heiðarvegi 9a.
Verð: 19.900 kr. Kennari er Auðunn Haraldsson. Hann hefur samhliða aðalstarfi sínu sem tónlistarkennari kennt börnum skák hjá Taflfélagi Vestmannaeyja og er með kennsluréttindi frá Evrópska skáksambandinu (European Chess Union). Skráning og frekari upplýsingar, meðal annars svör við mögulegum spurningum, eru á kennsluvefur.vercel.app/namskeid
