Móttaka og opið hús verður i Sagnheimum fyrir bæjarbúa kl. 16:30 á fimmtudag. Bæjarbúum gefst þar kostur á að hitta forsetahjónin og taka þátt í hátíðlegri dagskrá þar sem boðið verður upp á tónlistaratriði og börn af leikskólanum Sóla munu syngja. Þá munu forseti og bæjarstjóri flytja stutt ávörp.
Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að mæta.
