Þar gefst gestum og gangandi færi á að kynna sér starf skólans, ræða við starfsfólk og prófa hljóðfærin. Ýmsar tónlistaruppákomur verða í skólanum, svo sem opin lúðrasveitaræfing og alls kyns tónlistaratriði.
Heitt verður á könnunni og eitthvað kruðerí með sopanum.
Allir eru velkomnir og tilvalið að nýta tækifærið og kynna sér starf skólans.
