MEY ráðstefnan er einstakur viðburður sem gleður, styrkir og valdeflir konur með nærandi fyrirlestrum, innblæstri og góðri samveru. Hér skapast rými fyrir tengslamyndun, jákvæðni og kraftmikla umræðu í hlýju samfélagi kvenna. Við bjóðum þér að slást í hópinn og upplifa MEY – þar sem kraftur kvenna fær að njóta sín á Heimaey.
Dagskrá Sagnheimar – Vestmannaeyjar
14:00 – Birna Rún Eiríksdóttir - Bremsulaus
15:00 – Lilja Birgisdóttir - Ilmupplifun
15:30 – Léttar veitingar
16:30 – Edda Björgvinsdóttir - Húmor og hamingja – dauðans alvara
17:30 Dagskrá lýkur í Sagnheimum
19:00 – Kvöldverður í Eldheimum
