Þriðjudaginn 16. desember nk. kl. 20:00 ætlar kór Landakirkju undir stjórn Kitty Kovács og undirleikarar að halda okkar árlegu jólatónleika. Efnisskráin er létt og skemmtileg og ætti að gleðja alla aldurshópa og koma öllum í jólagírinn. Einsöngvari með kórnum verður Hildigunnur Einarsdóttir sópran. Mikið þætti okkur vænt um að sjá ykkur og eiga skemmtilega jólatónleika saman, þá kemur jólagleðin. Aðgangseyrir er 3.000 kr. (Ath engin posi en hægt er að millifæra greiðsluna) og verður innheimt við dyr safnaðarheimilisins Landakirkju, gengið inn frá Skólavegi.
Jólatónleikar kórs Landakirkju
Dags
16. desember
Staðsetning
Landakirkja
Jólatónleikar kórs Landakirkju
