Á efnisskránni er að finna bæði kraftmikil og hugljúf lög. Í bland við hefðbundna karlakóraslagara má finna íslensk dægurlög, Eyjalög, djass standarda og að sjálfsögðu hina sívinsælu sjómannasöngva. Eins og jafnan má búast við mun Karlakór Vestmannaeyja flytja dagskrá af metnaði, hlýju og krafti undir dyggri stjórn Matthíasar Harðarsonar við undirleik Kitty Kovács. Tónleikarnir fara fram í Eldheimum nk. fimmtudag 4.júní og hefjast klukkan 20.00. Allir eru hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir. Miðasala fer fram í Kránni við Bárustíg og borgar sig að tryggja sér miða sem fyrst.
Hvíslað yfir hafið - Vortónleikar Karlakórs Vestmannaeyja
Dags
4. júní
Kl.
20:00 - 22:00
Staðsetning
Eldheimar
Karlakór Vestmannaeyja heldur sína árlegu vortónleika fimmtudaginn 4. júní, í aðdraganda sjómannadags. Tónleikarnir eru aðeins seinna á dagatalinu en venjan er hjá kórnum en sjómenn hafa mikið kvartað yfir því að komast ekki á þennan stórviðburð undanfarin ár. Í ár var því ákveðið að tónleikarnir eru yrðu hluti af stemningunni í kringum sjómannadagshelgina og bjóðum við sjómenn sérstaklega velkomna.
