Fara í efni

Hljómey 2026

Dags
24. apríl
Kl.
19:30 - 23:30
Staðsetning
Víðsvegar um miðbæ Vestmannaeyja
Stórkostleg tónlistarhátíð í hjarta Vestmannaeyja, þar sem listamenn koma fram í heimahúsum heimamanna.
Deildu

Tónlistarhátíðin Hljómey er haldin síðasta föstudag í apríl ár hvert í ýmsum stofum og húsakynnum í miðbæ Vestmannaeyja. Hátíðin var fyrst haldin árið 2023 þar sem 15 flytjendur komu fram, af þeim voru 8 úr Vestmannaeyju og var hátíðin haldin í 10 heimahúsum. Árið 2024 voru listamennirnir 14 í 10 heimahúsum. Á fyrstu tveimur hátíðunum voru gestir um 300 talsins. Árið 2025 var hátíðin haldin í 15 heimahúsum með 15 listamönnum og voru gestir hátíðarinnar um 500 talsins. Miðasala á hátíðina fer fram í febrúar ár hvert og byrjað er að kynna listamenn í lok janúar ár hvert. Uppselt hefur verið á allar hátíðirnar hingað til. Gestir fá afhent armbönd gegn framvísum miða og rölta þeir á milli húsa og sjá þá listamenn sem þeir kjósa hverju sinni. Dagskráin er gefin út skömmu fyrir hátíðina og má ætla að gestir geti séð allt upp í fjóra til fimm listamenn yfir kvöldið, með dugnaði. Kvöldið endar svo fyrir utan Brothers Brewery þar sem brennukóngurinn kveikir bál og við syngjum hátíðina á enda. Mikilvægt er að fylgja FACEBOOK síðu hátíðarinnar þar sem allar tilkynningar eru birtar, m.a. um miðasölu..