Deginum verður varið í áhugaverð erindi, góðan félagsskap og fjölbreytta dagskrá sem nærir bæði líkama og sál. Skjöldur er tilvalinn fyrir vinnustaði, vini, feðga, bræður, frændur eða hvern þann karlmann sem vill gera sér glaðan dag í Eyjum.
Sagnheimar, kl. 14:00–17:30
Á ráðstefnunni verður boðið upp á áhugaverð erindi og léttar veitingar í mat og drykk.
Bergur Ebbi
Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi)
Jónas Sigurðsson
Hamingjustund og smakkupplifun á Brothers Brewery, kl. 17:30–19:00
Eftir ráðstefnuna heldur dagskráin áfram á Brothers Brewery með hamingjustund og skemmtilegri smakkupplifun.
Kvöldverður á Einsi Kaldi, kl. 19:00
Deginum lýkur með glæsilegum kvöldverði á Einsa Kalda þar sem Einar Björn Árnason kokkur reiðir fram ljúffengar veitingar.
Allir þátttakendur fá einnig fallega gjöf.
Við hlökkum til að fagna með ykkur í Vestmannaeyjum!
Verð: 28.900 kr.
Skoðaðu bæklinginn : Skjöldur Herraþing
(Krafa verður send í heimabanka.)
