Fara í efni

Heima hjá Eló

Dags
28. mars
Kl.
20:00 - 21:30
Staðsetning
KFUM&K húsið, Vestmannabraut 5
Heima hjá Eló, tónleikar. Eló, Elísabet Guðnadóttir, hlaut í fyrra þann ánægjulega titil Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2025 og ætlar að fagna því um pálmasunnudags helgina.
Deildu

Er ekki kominn tími á að Eló haldi almennilega tónleika í heimabænum sínum? Svarið er JÚ! Eló býður Vestmannaeyjingum uppá huggulega tónleika í KFUM & K húsinu á Vestmannabraut 5 laugardaginn 28. mars kl 20. Hún ætlar að spila fyrir ykkur frumsamin lög, sum sem enginn hefur heyrt áður. Með henni verða hennar bestu menn, Bergsteinn Sigurðarson, Hjálmar Carl Guðnason, Ívar Andri Klausen og Karl William Sigurðarson Olsen. Eló, Elísabet Guðnadóttir, hlaut í fyrra þann ánægjulega titil Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2025 og ætlar að fagna því um pálmasunnudags helgina. Verðið fyrir miðann er bros á vör, já það kostar ekkert inn nema að mæta :) Öll velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur <3