Ath. að þetta er ekki markaður til að tæma skápa af notuðu, heldur einungis fyrir handverk og vörur.
Markaðurinn verður kl. 13:00 - 17:00 báða dagana og breytum við pallinum í kaffihús, þar sem seldar verða vöfflur o.fl.
Í gegnum árin hefur æði fjölbreyttur varningur verið til sölu, s.s. skart, úrskurður, fatnaður, myndir, kerti, jólaskraut, hárvörur, salt, sælgæti, rafmagnsreiðhjól, gjafabréf, o.fl. o.fl, því ekki vantar flóruna hér í Eyjum.
Verðin eru:
Eitt borð: 6.000 kr
Tvö borð: 11.000 kr
Þrjú borð: 15.000 kr.
Ath. engin hækkun á milli ára ![]()
Húsið verður opið söluaðilum til uppsetningar sem hér segir:
Fös 13. nóv: 17.00 - 18.00
Lau 14. nóv: 10.30 - 13.00
Skráning á hollinivestmannaeyjum@gmail.com eða í síma 8685460.
