Grýla hefur þurft að halda heimili ein í mörg hundruð ár, með 13 jólasveinasyni á heimilinu, Leiðindaskjóðu sem gerir henni lífið leitt á hverjum degi og með gagnslausan Leppalúða í hellinum líka. Jólakötturinn er í raun það eina sem veitir Grýlu gleði - en núna hefur hún fengið nóg. Hún neitar að gera allt ein þessi jólin og gefur jólasveinunum verkefni: Finna kjöt fyrir jólamatinn og óþekkan krakka til að þrífa hellinn. Þetta verkefni er þó ekki jafn auðvelt og það hljómar fyrir bræðurna 13 og úr því verður skemmtileg og viðburðarrík saga sem gerist yfir 13 nætur - þær nætur sem jólasveinarnir eru að gefa í skóinn.
Leikritið er hugverk hennar Ölmu okkar Eðvaldsdóttur, hún skrifaði það á sínum tíma fyrir leikfélagið þegar það stóð höllnum fæti í rekstrinum. Við vildum setja upp jólaverk núna en einmitt passa upp á reksturinn líka, því ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir kostnaðinum á bakvið það að setja upp leikrit. Við eigum þetta leikrit og spörum þannig höfundarétt sem og erum að leikstýra sjálf og þar með er sparnaður í leikstjórakostnaði, sem vegur hvað þyngst í uppsetningu leikrits.
