Þetta á sér rætur að rekja til sameiginlegra jarðfræðilegra þáttum: en löndin eru báðar eyjaþjóðir sem staðsettar eru á flekaskilum þar sem Evrasíuflekinn og Norður-Ameríkuflekinn annars vegar togast á við hvorn annan og hins vegar ganga niður undir annan flekann, sem leiðir til virkrar jarðskorpuhreyfingar og tíðrar eldvirkni. Með því að fjalla um jarðfræðileg fyrirbæri, þau samfélagslegu viðbrögð sem þau kalla fram og þær leiðir sem mannfólkið notar til að takast á við þau, leitast Geological Rhapsody við að tengja þessi atriði við raunverulegar aðstæður og núverandi alþjóðlegt samhengi. Sýniningin kannar líkindi og mismun á náttúrulegu umhverfi Íslands og Japans, og hvernig þessir þættir hafa áhrif á menningarlega þætti á borð við sambandið við náttúruna, hamfaravarnir og nauðungarflutninga — í gegnum verk þessara fjögurra listamanna. Að auki mun framsetning japanskra dæma fyrir íslenskan áhorfendahóp, og öfugt, skapa vettvang fyrir beina samræðu við listamennina. Þessi gagnkvæma miðlun miðar að því að hvetja til ígrundunar um sérstöðu staðbundinna umhverfa sem og sameiginlegra eiginleika þeirra með öðrum löndum, og stuðla þannig að þverþjóðlegu samstarfi og miðlun þekkingar á sviði umhverfismála. Sýningin opnar föstudaginn 23. janúar 2026 og listamennirnir verða á staðnum frá klukkan 16:00 – 18:00 þann dag.
Sýningin er opin mánudaga til laugardaga kl. 12:00-15:00.
Geological Rhapsody
Dags
23. janúar kl. 12:00 -
6. apríl kl. 15:00
6. apríl kl. 15:00
Staðsetning
Sagnheimar
Sýningin Geological Rhapsody hefur það markmið að kanna hvernig jarðfræðileg virkni mótar mannlega sýn, hegðun og hugmyndir um vistfræðilega sambúð, út frá listrænum sjónarhornum íslenskra og japanskra listamanna.
Þótt Ísland og Japan séu í það bil 8.600 km fjarlægð, deila þau áhugaverðum menningarlegum líkindum, svo sem nánum tengslum við náttúruöflin og animískar heimsmyndir.
