Fágætissalur
Nýr fágætissalur opnaði í Safnahúsi Vestmannaeyjar á vordögum 2025.
Þar verður að finna eitt merkilegasta fágætisbókasafn landsins sem opið er almenningi, en uppistaðan í því er um 1.500 bækur sem Ágúst Einarsson, fyrrverandi prófessor og rektor á Bifröst hefur gefið Bókasafni Vestmannaeyja.
Þar verður meðal annars að finna allar útgáfur Biblíunnar frá Guðbrandsbiblíu (1584), Þorláksbiblíu (1644) og Steinsbiblíu (1728) að telja. Elsta bókin í safninu er vögguprent, frá 1498.
Þá verða einnig í fágætissalnum 37 málverk eftir Jóhannes Kjarval en Vestmannaeyjabær mun eiga eitt stærsta safn Kjarvalsverka sem loksins verða gerð aðgengileg á varanlegri sýningu.
Verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur prýða veggi sérstaks átthagarýmis með rösklega 2.000 bókum og blöðum, auk Íslandskorta frá um 1570.