Starfstímabil Vinnuskólans er frá júní til ágúst. Vestmannaeyjabær býður öllum börnum og unglingum á aldrinum 13-16 ára, sem eru með lögheimili í Vestmannaeyjum, starf yfir sumartímann.
Vinnuskólinn er sumarstarf fyrir ungmenni á aldrinum 13–16 ára þar sem þau fá tækifæri til að vinna, læra og efla ábyrgð. Markmiðið er að styrkja samfélagsvitund, veita reynslu af vinnumarkaði og stuðla að jákvæðri þátttöku í nærumhverfinu.
Verkefnin eru fjölbreytt og snúa m.a. að umhverfisverkefnum, fegrun bæjarins og öðrum samfélagslegum verkefnum.
Sumarið 2026 verður sett upp í 10 tímabil (eina viku í senn). Ekki verður hægt að færa daga/klst á milli tímabila.
Tímabil hjá börnum fædd 2010-2012:
Tímabil 1: 10.-12. júní
Tímabil 2: 15.-19. júní
Tímabil 3: 22.-26. júní
Tímabil 4: 29. júní - 3. júlí
Tímabil 5: 6.-10. júlí
Tímabil 6: 13.-17. júlí
Tímabil 7: 20.-24. júlí
Tímabil 8: 27.-30. júlí
Tímabil 9: 4.-7. ágúst
Tímabil 10: 10.-14. ágúst
Unnið er frá kl. 8.30-11.30 og 12.30-15.30 (6 klst) mánudaga til föstudaga, hádegishlé er frá 11.30-12.30
Börn fædd árið 2010
Geta valið allt að 7 tímabil og laun eru greidd skv. kjarasamningi sem er 1.592 kr á klst
Þau sem hafa náð 16 ára aldri þurfa að gefa upplýsingar um nýtingu á persónuafslætti.
Geta valið allt að 6 tímabil og laun eru greidd skv. kjarasamningi sem er 1.274 kr á klst
Geta valið allt að 5 tímabil og laun eru greidd skv. kjarasamningi sem er 1.114 kr á klst
Tíímabil:
Tímabil 1: 13.-17. júlí
Tímabil 2: 20.-24. Júlí
Tímabil 3: 27.-30. Júlí
Tímabil 4: 4.-7. ágúst
Tímabil 5: 10.-14. ágúst
Unnið er frá kl. 8.30-11.30 eða 12.30-15.30 (3 klst) mánudaga til föstudaga Hægt er að velja öll 5 tímabilin og eru laun greidd skv. kjarasamningi sem er 955 kr á klst.
Laun eru greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar og eru lögð inn á bankareikning einstaklingsins (ekki er hægt að setja bankareikning foreldris/forráðamanns). Launatímabilið er frá 26. hvers mánaðar til 25. þess næsta.
Markmið vinnuskólans er að undirbúa ungmenni í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum.